Umhyggja, gleði og kraftur

Fjölskylduguðsþjónusta 19. október kl. 11:00

Sunnudaginn 19. október kl. 11:00 er fjölskylduguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju. Sr. Sigfús B. Ingvason leiðir stundina ásamt þeim Fríðu og Smára úr Klassart. Messuþjónar taka þátt og sjálfboðaliðar bera fram veitingar!

By |2014-10-15T09:44:27+00:0014. október 2014 | 13:35|

Harmónikkumessa sunnudaginn 12. október

Sunnudaginn 12. október kl. 11:00 fáum við góða gesti í kirkjuna okkar. Harmónikkufélag Suðurnesja leikur þar undir í guðsþjónustunni og má því gera ráð fyrir hressilegum polkatakti við sálmasönginn. Ekki er það nú leiðinlegt! Barnastarfið er á sínum stað í umsjón sr. Erlu, Systu, Önnu Huldu og Esther. Messuþjónar lesa texta og okkar frábæru súpuþjónar [...]

By |2014-10-07T14:49:53+00:007. október 2014 | 14:15|

Markþjálfun: Kirkjan í sókn

Þriðjudagskvöldið 14. október milli kl. 19 og 21:30 er samvera sjálfboðaliða og leiðtoga í Keflavíkurkirkju. Boðið verður upp á kjarngóða súpu og að því loknu leiðir Elín Elísabet Jóhannsdóttir, fræðslufulltrúi á biskupsstofu og markþjálfi okkur í spennandi námskeiði: Námskeiðið skiptist í grófum dráttum niður á þennan hátt: Fyrirlestur og spjall og síðan verklegar æfingar. Í [...]

By |2014-10-06T11:24:23+00:006. október 2014 | 10:46|

Guðni Kjartansson í hádeginu miðvikudaginn 8. okt.

Bryddað hefur verið upp á þeirri nýbreytni að bjóða hádegisfyrirlestra í Keflavíkurkirkju á miðvikudögum. Að vanda er kyrrðarstund kl. 12 og í framhaldi nýtur fólk góðra veitinga í Kirkjulundi. Miðvikudaginn 8. október fáum við góðan gest, Guðni Kjartansson þjálfari og íþróttagoðsögn ætlar að segja frá gildi hreyfingar á efri árum og rifja upp góðar sögur [...]

By |2014-10-07T15:02:43+00:003. október 2014 | 09:56|

Tvær messur, sunnudaginn 5. október

Mikið er um dýrðir þessa dagana í Keflavíkurkirkju. Síðasta sunnudag var fullt út að dyrum í barnastarfinu og hvert sæti skipað í hádegissúpunni! Svona viljum við hafa þetta. Næstkomandi sunnudag, 5. október eru tvær messur í kirkjunni. Kl. 11:00 er guðsþjónusta og barnastarf. Sr. Erla Guðmundsdóttir, Systa, Esther og Anna Hulda stýra barnastarfinu. Arnór Vilbergsson [...]

By |2014-09-29T11:11:03+00:0029. september 2014 | 11:11|

Guðsþjónusta, barnastarf og dýrindis súpa

Sunnudagin 28. september kl. 11:00 er guðsþjónusta og barnastarf í Keflavíkurkirkju. Arnór Vilbergsson situr við hljóðfærið og leiðir sönginn. Sr. Erla Guðmundsdóttir stýrir barnastarfi ásamt Systu, Esther og Önnu Huldu. Messuþjónar lesa texta og súpuþjónar bjóða fram veitingar! Prestur er sr. Sigfús B. Ingvason.

By |2014-09-22T10:11:41+00:0022. september 2014 | 10:06|

Guðsþjónusta sunnudaginn 21. september

Síðasta sunnudag var fjöldi gesta í kirkjunni. Nýir súpuþjónar sáu mannskapnum fyrir veitingum og báru á borð grænmeti úr kirkjukálgarðinum. Vætnanlega verður fjölmenni einnig á sunnudaginn kemur. Guðsþjónusta og barnastarf í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 21. september kl. 11:00. Arnór Vilbergsson er við hljóðfærið og leiðir hóp messuþjóna. Sr. Erla Guðmundsdóttir, Systa, Esther og Anna Hulda stýra [...]

By |2017-03-17T22:27:40+00:0015. september 2014 | 09:46|
Go to Top