Fjórða tölublað fréttabréfsins er komið út!
Fréttabréf Keflavíkurkirkju er nýlunda í kynningarmálum kirkjunnar. Nú er fjórða tölublaðið komið út. Endilega lesið og deilið![/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]
Fréttabréf Keflavíkurkirkju er nýlunda í kynningarmálum kirkjunnar. Nú er fjórða tölublaðið komið út. Endilega lesið og deilið![/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]
Miðvikudaginn 29. október hefst nýtt námskeið í krílasálmum. Þessi samkoma er mjög gefandi bæði fyrir kornabörnin og foreldrana. Sr. Erla Guðmundsdóttir tekur við skráningum á netfangið erla@keflavikurkirkja.is
Starfsfólk á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja tekur þátt í allra heilagra messu í Keflavíkurkirkju kl. 14:00. Þar minnumst við látinna ástvina og hugleiðum lífið og endimörk þess. Kór Keflavíkurkirkju flytur verk úr þekktum sálumessum og að messunni lokinni býður starfsfólkið til samsætis í safnaðarheimilinu. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.
Sunnudaginn 2. nóvember eru þrjár messur á dagskrá í Keflavíkurkirkju. Kl. 11:00 er guðsþjónusta og barnastarf að vanda. Arnór Vilbergsson er við orgelið, Sr. Erla Guðmundsdóttir, Systa, Esther og Anna Hulda stýra barnastarfinu. Messuþjónar lesa texta. Sjálfboðaliðar bera fram krásir að messu lokinni. Prestur er sr. Sigfús B. Ingvason. Sérstök athygli er vakin á allra [...]
Hérna getið þið séð fréttablaðið. Skráið ykkur endilega á póstlistann :)
Sunnudaginn 26. október kl. 20:00 er bleik messa í Keflavíkurkirkju í samstarfi við Krabbameinsfélag Suðurnesja. Guðmundur Björnsson segir frá starfseminni, Anna Lóa Ólafsdóttir og Sigríður Jóna Jónsdóttir lesa ritningartexta og ræðumaður verður Sigurbjört Kristjánsdóttir. Seríurnar sjá um söng og leik ásamt Arnóri Vilbergssyni sem er við hljóðfærið. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Tilefnið er vitaskuld [...]
Sunnudaginn 26. október eru tvær guðsþjónustur. Sú fyrri er að vanda kl. 11:00. Barnastarf fer fram á sama tíma í umsjón sr. Erlu Guðmundsdóttur, Systu, Esther og Önnu Huldu. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju leiða sönginn undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Messuþjónar lesa texta og sjálfboðaliðar reiða fram veitingar að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. [...]
Á miðvikudaginn í hádeginu fjallar Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir um heilsueflandi samfélag en Reykjanesbær hefur leitað til hennar um að leiða stefnumótun bæjarins í málefnum heilsu og heilbrigðis. Að vanda hefst samveran á kyrrðarstund. Að því loknu er boðið upp á dásamlegar veitingar sem gæðakonur reiða fram. Og loks hlýðum við á erindi Sigríðar Kristínar og [...]
Fyrsta kvöldstundin með Kór Keflavíkurkirkju verður haldin þriðjudaginn 21. október n.k. og hefst hún kl. 20:00. HS orka er styrktaraðili kvöldsins og býður starfsfólki sínu og öðrum góðum gestum á fyrsta kvöldið. Þar munu stíga á stokk einstönvararnir Sigrún Lína Ingólfsdóttir, Erla Melsteð og Steinn Erlingsson en undirleikari er Arnór B. Vilbergsson. Þá mun Sólmundur [...]
Kór Keflavíkurkirkju mun bjóða upp á notalega kvöldstund í kirkjunni þriðja þriðjudag í mánuði í vetur undir yfirskriftinni „Kvöldstund með kórnum“ þar sem kórfélagar taka lagið, bæði í einsöng eða samsöng auk þess sem gripið verður í hljóðfæri, eða eitthvað allt annað. Markmiðið er að safna í ferðasjóð kórsins og verður tekið á móti frjálsum [...]