Kyrrðarstundir hefjast að nýju
Hauststarfið er komið á fullan skrið og nú hefjast kyrrðarstundir að nýju. Miðvikudaginn 17. september kl. 12:10 er fyrsta kyrrðarstundin okkar í haust. Súpa að samveru lokinni. Allir eru velkomnir!
Hauststarfið er komið á fullan skrið og nú hefjast kyrrðarstundir að nýju. Miðvikudaginn 17. september kl. 12:10 er fyrsta kyrrðarstundin okkar í haust. Súpa að samveru lokinni. Allir eru velkomnir!
Krílasálmar, nýtt tónlistarnámskeið fyrir börn 3 til 12 mánaða, hefst í Keflavíkurkirkju 24. september. Á námskeiðinu læra foreldrar að nota leiðir að nota söng og tónlist í daglegu uppeldi og umönnun barna sinna. Sungnir eru sálmar, og lög kirkjunnar, þekkt barnalög og kvæði, leikið og dansað, hlustað og leikið og notið samverunnar í notalegu umhverfi [...]
Sunnudaginn 7. september, mitt í erli Ljósanætur er boðið til látlausrar lesmessu í Keflavíkurkirkju. Sr. Sigfús Baldvin Ingvason þjónar fyrir altari.
Öflugt tónlistarstarf fer fram í Keflavíkurkirkju undir dyggri stjórn Arnórs B. Vilbergssonar organista. Kór Keflavíkurkirkju annast söng í helgihaldi kirkjunnar og útförum auk þess sem hann setur reglulega upp metnaðarfull verkefni. Það síðasta var sálumessa Faure sem flutt var sl. vor við góðar undirtektir. Kórinn er ávallt að leita að góðu söngfólki og geta áhugasamir [...]
Einn af lykilþáttum í starfi Keflavíkurkirkju er sjálfboðin þjónusta. Sjálfboðaliðar hafa áhrif á ýmsa þætti safnaðarstarfanna og leitast er við að skapa andrúmsloft skapandi og gagnrýninnar samræðu um gæði þjónustunnar. Helstu flokkar sjálfboðaliða eru þessir: Sóknarnefnd Messuþjónar Súpuþjónar Aðrir sjálfboðaliðar Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við okkur og sent póst á keflavikurkirkja@keflavikurkirkja.is
Keflavíkurkirkja setur nú í loftið nýjan vef. Það er von okkar að hann hjálpi okkur að miðla betur starfseminni í kirkjunni en við erum opin fyrir öllum góðum ábendingum svo við getum bætt okkar þjónustu.