Messur

Holtaskólabörn fermd 5. maí kl. 11 og 14

Annar sunnudagur með fermingarathöfnum í Keflavíkurkirkju verður 5. maí kl. 11 og 14. Holtaskólaskólabörn verða fermd af sr. Fritz og sr. Erlu við hátíðarstundu. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Messuþjónar við athafnirnar verða Þórey Eyþórsdóttir, Helga Jakobsdóttir, Garðar Guðmundsson og Fanney Ómarsdóttir.

By |2019-05-02T12:54:00+00:002. maí 2019 | 12:45|

Myllubakkaskólabörn fermd 28. apríl kl. 11

Fyrsta sunnudagur með fermingarathöfnum verður sunnudaginn 28. apríl kl. 11. Myllubakkaskólabörn verða fermd af sr. Fritz Má og sr. Erlu við hátíðarstundu. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs organista. Guðrún Hákonardóttir og Stefán Jónsson eru messuþjónar.

By |2019-04-26T13:09:51+00:0026. apríl 2019 | 13:09|

Fjölskyldumessa á pálmasunnudegi

Pálmasunnudagurinnn verður með barnasöng, biblíusögu og bænum í fjölskyldumessa kl. 11. Barnakór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista og Freydísar Kneifar.  Systa og Helga leiða stundina ásamt sr. Erlu. Stefán og Guðrún eru messuþjónra. Verið velkomin til kirkju í upphafi dymbilviku

By |2019-04-09T12:03:07+00:009. apríl 2019 | 11:58|

Á ljúfum og léttum nótum 31. mars kl. 11

Sunnudaginn 31. mars kl. 11 verðum við á ljúfum og léttum nótum í helgihaldi dagsins. Dútettin Heiður, sem skipar Hjörleif Már Jóhannesson og Eið Eyjólfsson, syngja og spila. Jóhanna, Helga og Systa bjóða uppá sunnudagaskóla með biblíusögu, bæn og söng. Linda Gunnarsdóttir er messuþjónn og Harpa Jóhannsdóttir ásamt fermingarforeldrum reiða fram súpu og brauð. Sr. Erla [...]

By |2019-03-26T19:26:09+00:0026. mars 2019 | 18:21|

Sigurður Smári og Bartímeus blindi sunnudaginn 17. mars

Sunnudaginn 17. mars kl. 11 er að vanda hefðbundin messa en að þessu sinni mun Sigurður Smári Hansson spila og syngja létta og ljúfa sálma í messunni. Garðar Guðmundsson og Fanney Petra Ómarsdóttir eru messuþjónar. Guðspjall dagsins segir frá Bartímeus blinda. Systa og Helga leiða sunnudagaskólann. Þorbjörg Óskarsdóttir og fermingarforeldrar reiða fram súpu og Sigurjónsbrauð. [...]

By |2019-03-12T07:12:22+00:0012. mars 2019 | 07:09|

Gerum ei jörðinni mein

Sunnudagurinn 10. mars í Keflavíkurkirkju beinir sjónum sínum að börnum, unglingum og umhverfinu Kl. 11 – Barna- og fjölskyldumessa. Barnakór Keflavíkurkirkju kemur fram í söng undir stjórn Arnórs organista og Freydísar Kneifar Kolbeinsdóttur. Súpa og brauð í boði eftir messu. Frjáls framlög í baukinn renna til verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar til styrktar byggingu steinhúsa fyrir munaðarlaus börn [...]

By |2019-03-04T09:03:05+00:004. mars 2019 | 08:36|

Rótarýmessa á Biblíudegi í Keflavíkurkirkju

Biblíudagurinn er sérstaklega helgaður bókinni sem breytir heiminum.  Hann er sunnudaginn 24. feb og þá kl. 11 verður árleg Rótarýmessa Keflavíkurkirkju. Félagi Rótarýklúbbs Keflavíkur og menningarverðlaunahafi Reykjanesbæjar, listakonan Sossa, flytur hugleiðingu um hvernig hún sótti myndefni í bíblíumyndir er hún hélt sýningu á þeim verkum í Kirkjulundi haustið 2007. Í kjölfar veitti hún Keflavíkurkirkju að [...]

By |2019-02-18T11:44:25+00:0018. febrúar 2019 | 11:38|

Fjölskyldumessa sunnudaginn 10. febrúar kl. 11

Í fjölskyldumessu sunnudagsins 10. febrúar verður biblíusagan Eyrir ekkjunnar sögð. Jón Jóesp Snæbjörnsson, Jónsi í svörtum fötum, leikur á gítar og leiðir söng. Krakkakór Keflavíkurkirkju kemur fram undir kórstjórn Freydísar Kneifar Kolbeinsdóttur. Helga Sveinsdóttir gefur Rebba ref rödd sína. Sr. Erla Guðmundsdóttir er prestur. Súpuþjónar og fermingarforeldrar reiða fram heita súpu með Sigurjónsbrauði. Verið velkomin [...]

By |2019-02-04T09:23:37+00:004. febrúar 2019 | 09:17|

„Auk oss trú“ sunnudagurinn 27. janúar kl. 11

"Auk oss trú" segir í guðspjalli sunnudagsins 27. janúar en þau orð verða til umræðu í sunnudagsmessu kl. 11. Að vanda eru það félagar úr Kór Keflavíkurkirkju ásamt Arnóri organista sem opna helgihaldið með fallegum tónum. Systa, Jóhanna og Helga leiða sunnudagaskólabörn í Kirkjulund til gæðastundar sunnudagskólans. Guðrún Hákonardóttir og Stefán Jónsson eru messuþjónar. Þórdís [...]

By |2019-01-22T09:30:06+00:0022. janúar 2019 | 09:28|

Messa, sunnudagaskóli og súpusamfélag 13. janúar kl. 11

Sunnudaginn 13. janúar kl. 11 verður allt með hefðbundnum hætti í Keflvíkurkirkju. Messa með söng kórfélaga við stjórn Arnórs organista. Ásamt sunnudagaskóla í umsjón Systu, Helgu og Jóhönnu Maríu er bjóða uppá gæðastund. Guðspjall þessa sunnudags segir frá er Jesús var skírður í ánni Jórdan af Jóhannesi og himnarnir opnuðust. Linda Gunnarsdóttir er messuþjónn og [...]

By |2019-01-08T11:17:46+00:008. janúar 2019 | 11:17|
Go to Top