Sunnudagaskóli á sínum stað 26. janúar kl. 11. Verið velkomin.
Sunnudagaskólinn er á sínum stað á sunnudag 26. janúar kl. 11 fyrir unga sem aldna Við hlökkum til að sjá ykkur, Rut, Grybos, Helga og Jón Ingi.
Sunnudagaskólinn er á sínum stað á sunnudag 26. janúar kl. 11 fyrir unga sem aldna Við hlökkum til að sjá ykkur, Rut, Grybos, Helga og Jón Ingi.
Verið velkomin í nærandi kvöldmessu 19. janúar kl. 20 í Keflavíkurkirkju. Kórinn okkar leiðir söng undir stjórn Arnórs organista. Sr. Fritz Már þjónar fyrir altari ásamt Brynju messuþjón.
Næsta sunnudag 12. janúar er kvöldmessa í Keflavíkurkirkju kl. 20. Erla mun taka vel á móti ykkur ásamt Systu messuþjón og Steinu sem mun syngja og spila fallega tóna. Öll hjartanlega velkomin.
Kyrrðarstund hefst aftur miðvikudag 15. janúar kl. 11:30. Súpa og brauð að stund lokinni í Kirkjulundi fyrir kr. 500. Öll hjartanlega velkomin.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í sunnudagskólann 12. janúar kl. 11. Gleðilegt ár! Helga, Grybos, Jón Ingi og Rut.
Hátíðarguðsþjónusta á nýársdag 1. janúar 2025. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar mun flytja okkur hugvekju. Kórfélagar munu syngja undir stjórn Arnórs organista. Sr. Fritz Már og sr. Erla munu þjóna ásamt Jónínu og Páli messuþjónum. Öll hjartanlega velkomin.
Aftansöngur á gamlársdag 31. desember kl. 16. Kórinn ætlar að kveðja gamla árið með stæl með því að syngja nýjan texta Ómars Ólafssonar kórfélaga við Abba lag. Sr. Helga þjónar ásamt Ívari djákna. Við hlökkum til að sjá ykkur á síðasta degi ársins
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag í Keflavíkurkirkju. Kórinn syngur undir stjórn Arnórs. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Ívari djákna. Elva Björk er messuþjónn. Öll velkomin.
Verið velkomin á hátíðlega miðnæturstund á aðfangadag jóla. Jóhann Smári Sævarsson syngur með Arnóri organista. Sr. Erla þjónar fyrir altari.
Aftansöngur á aðfangadag jóla kl. 18 í Keflavíkurkirkju. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla og sr. Fritz Már þjóna. Halldóra og Helgi eru messuþjónar. Öll hjartanlega velkomin.