Fréttir

(Mótor)hjólamessa annan í hvítasunnu þann 20. maí kl. 20.

Verið velkomin í (mótor)hjólamessu þar sem fólk og faraskjótar fá blessun fyrir ferðalög sumarsins. Dúettinn Heiður munu flytja okkur fallega tóna inn í sumarið. Systa og Þórey sjá um messuþjónustu. Sr. Sigurður Kr. Sigurðsson þjónar fyrir altari. Verið hjartanlega velkomin til að njóta góðrar samveru.

By |2024-05-17T13:27:44+00:0014. maí 2024 | 07:27|

Vorhátíð í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 5. maí kl. 13-15.

KFUM&KFUK Suðurnes ásamt Keflavíkurkirkju bjóða til vorhátíðar þann 5. maí frá kl. 13-15. KFUM&KFUK leiða stund ásamt sunnudagaskólaleiðtogum. Regnbogaraddir syngja. Drottningin sem kann allt nema... kemur í heimsókn ásamt skósvein sínum. Andlitsmálning og glimmer, ratleikur, grillaðar pylsur og hoppukastali. Verið hjartanlega velkomin.

By |2024-04-30T10:10:51+00:0030. apríl 2024 | 10:10|

Æðruleysismessa kl. 20 þann 1. maí

Verið hjartanlega velkomin í nærandi æðruleysismessu í Keflavíkurkirkju þann 1. maí kl. 20. Yndisleg samvera, heyrum reynslusögur og njótum fallegrar tónlistar frá Steinunni Björgu. Brynja er messuþjónn og sr. Fritz Már leiðir stundina. Sjáumst!

By |2024-04-30T10:11:28+00:0029. apríl 2024 | 12:48|

Batamessa á sunnudaginn þann 28. apríl kl. 20.

Verið velkomin í nærandi batamessu í Keflavíkurkirkju á sunnudagskvöldið þann 28. apríl kl. 20. Batamessur eru góðar og gefandi stundir þar sem við eigum samfélag í kirkjunni okkar, iðkum 11. sporið og hittum aðra vini í bata og heyrum reynslusögur. Kórfélagar syngja undir stjórn Arnórs organista. Elva er messuþjónn og Ívar djáknakandidat, sr. Fritz og [...]

By |2024-04-23T09:28:34+00:0023. apríl 2024 | 09:28|

Skátamessa á sumardaginn fyrsta 25. apríl kl. 13.

Skátamessa er í Keflavíkurkirkju á sumardaginn fyrsta þann 25. apríl kl. 13. Skrúðganga hefst kl. 12:30 frá skátaheimili Heiðarbúa að Keflavíkurkirkju. Skátarnir Helgi og Halldóra eru messuþjónar. Dúettinn Heiður sem skipa Hjörleif og Eið sjá um tónlistarflutning. Sr. Helga Kolbeinsdóttir þjónar fyrir altari. Verið velkomin og gleðilegt sumar!

By |2024-04-23T09:24:05+00:0023. apríl 2024 | 09:24|

Stuðningshópur fyrir aðstandendur sem misst hafa í sjálfsvígi.

Píeta samtökin bjóða upp á stuðningshópa fyrir aðstandendur sem misst hafa í sjálfsvígi.  Stuðningshópurinn er góður vettvangur fyrir aðstandendur til að hittast og geta bæði veitt öðrum stuðning og sótt fyrir sig sjálfan. Hópurinn hittist þriðja mánudag í mánuði í Keflavíkurkirkju kl: 17:30, gengið inn bakatil. Benedikt Þór Guðmundsson ráðgjafi og aðstandandi leiðir samveruna.  

By |2024-04-19T19:44:02+00:0019. apríl 2024 | 19:44|
Go to Top