Bænir

Messa og hrekkjavökusunnudagaskóli 30. október kl. 11

Sunnudaginn 30. október kl. 11 syngja kórfélagar undir stjórn Arnórs við messu. Linda og Elva Björk eru messuþjónar. Sr. Erla þjónar. Hrekkjavökusunnudagaskóli á sama tíma í umsjón Grybosar, Marínar og Helgu. Fermingarfjölskyldur reiða fram súpu og brauð í Kirkjulundi

By |2022-10-27T12:04:09+00:0027. október 2022 | 12:04|

KFUM & KFUK messa 2. október kl. 11

Sunndudagurinn 2. október kl. 11 er KFUM & KFUK messa í Keflavíkurkirkju. Sigurbjört Kristjánsdóttir leiðir söng með gítarleik. Helga Vigdís Thordersen flytur hugleiðingu. Messuþjónar eru Guðrún Hákonardótir og Stefán Jónsson. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar.

By |2022-09-27T09:39:29+00:0027. september 2022 | 09:39|

Eidemessa 18. september kl. 20

Sunnudagskvöldið 18. september kl. 20 býður Keflavíkurkirkja til Eidemessu, Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs organista og sr. Erla þjónar.

By |2022-09-13T16:10:17+00:0013. september 2022 | 16:10|

Fermingarmessur 24. apríl kl. 11 og 13

Sunnudaginn 24. apríl kl. 11 og 13 verða Heiðarskólabörn fermd í hátíðlegum fermingarmessu. Vox Felix syngur undir stjórn Rafns Hlíðkvist Björgvinssonar. Sr. Erla Guðmundsdottir og sr. Fritz Már Jörgensson þjóna ásamt Heiðu Björgu Gústafsdóttur, djákna, og Marín Hrundar Jónsdóttur.

By |2022-04-18T18:46:46+00:0018. apríl 2022 | 18:46|

Friðarmessa og sunnudagaskóli 20. mars kl. 11

Friðarmessa sunnudaginn 20. mars kl. 11. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngju undir stjórn Arnórs Vilbergssonar, organista. Linda Gunnarsdóttir er messuþjónn. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Sunnudagaskóli á sama tíma í höndum Marínar Hrundar, Helgu og Alexanders Grybos.

By |2022-03-16T10:07:29+00:0016. mars 2022 | 10:07|

Annar sunnudagur í aðventu

Aðventustund og sunnudagaskóli 5. desember kl. 11 Er við kveikjum á Betlehemskertinu á öðrum sunnudegi í aðventu bjóðum við upp á lágstemmda stund í Keflavíkurkirkju. Arnór organisti leikur undir söng kórfélaga og sr. Erla leiðir stundina. Sunnudagaskólaleiðtogar leiða stund í Kirkjulundi á sama tíma. Megi aðventan snerta við og styrkja trú okkar.

By |2021-11-30T10:15:09+00:0030. nóvember 2021 | 10:15|

Göngumessa sunnudagskvöldið 13. júní kl. 20

Sunnudagskvöldið 13. júní kl. 20 munum við ganga í umhverfi Keflavíkurkirkju. Kórfélagar, við undirspil Arnórs organista á ukulele, leiða söng. Sr. Erla fer með orð og bæn. Endað verður í bakgarði sóknarprests á Brunnstíg í kaffisopa og heimabökuðu. Hlökkum til samverustundar með ykkur á sumarkvöldi.      

By |2021-06-08T14:11:46+00:008. júní 2021 | 14:11|

Sjómannadagurinn í Reykjanesbæ 2021

Sjómannamessa verður í Bíósal Duus Safnahúsa á sjómannadaginn 6. júní kl. 11. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju leiða söng við undirspil og stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Safnstjóri Byggðasafns Reykjanesbæjar kynnir sýninguna Fast þeir sóttu sjóinn – Bátasafn Gríms Karlssonar. Í lok dagskrár verður lagður krans við minnismerki sjómanna á Bakkalág við Hafnargötu.

By |2021-06-03T08:25:33+00:003. júní 2021 | 08:25|

Hvítasunnudagur kl. 11

Hvítasunnudaginn 23. maí kl. 11 veð sex ungmenni fermd í Keflavíkurkirkju. Elmar Þór syngur við undirleik Arnórs organista. Sr. Erla og sr. Fritz þjóna. Verið öll velkomin

By |2021-05-20T10:37:33+00:0020. maí 2021 | 10:37|

Taizémessa að kveldi 16. maí kl. 20

Sunnudagskvöldið 16. maí kl. 20 verður taizémessa í Keflavíkurkirkju. Slík messa á uppruna sinn að rekja til Suður Frakklands nánar tiltekið til bæjarins Taizé. Kórfélagar, undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista, syngja taize sálma sem byggist á endurteknu söngstefi sem kallar fram hughrif kyrrðar. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar.  

By |2021-05-13T13:52:51+00:0013. maí 2021 | 13:52|
Go to Top