Kvöldmessa 16. ágúst kl. 20
Sunnudagskvöldið 16. ágúst kl. 20 verður kvöldmessa í Keflavíkurkirkju. Páll Jóhannesson, kirkjukórsmeðlimur, syngur einsöng við undirleik Arnórs organista. Sr. Erla þjónar. Verið velkomin
Sunnudagskvöldið 16. ágúst kl. 20 verður kvöldmessa í Keflavíkurkirkju. Páll Jóhannesson, kirkjukórsmeðlimur, syngur einsöng við undirleik Arnórs organista. Sr. Erla þjónar. Verið velkomin
Unglingakórinn FriFraVoce frá þýska sambandslandinu Rheinland Pfalz hefur dvalið á Íslands síðustu daga. Kórinn óskaði eftir samstarfi við íslenskan kór og hafði Margrét Bóasdóttir, söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar, milligöngu um að Vox Felix myndi vinna með kórnum. Þau sungu saman í Skálholti síðustu helgi og bjóða uppá tónleika miðvikudagskvöldið 22. júlí kl.20 í Keflavíkurkirkju. Kórarnir munu syngja [...]
Himinn lofar góðu sunnudagskvöldið 21. júní kl. 20 er við höldum í árlega göngumessu um gamla bæinn í Keflavík. Helgi Valdimar Biering leiðir okkur í fróðleik á milli sögureita á elsta svæði Keflavíkur. Gengið verður frá kirkjutröppum. Arnór organisti kallar okkur í söng við ukulelespil. Sr. Erla biður bænir og blessar undir berum himni. Að [...]
Miðvikudaginn 17.júní verður hátíðarmessa í Keflavíkurkirkju kl.12.00. Við höldum upp á þjóðhátíðardaginn í Keflavíkurkirkju. Séra Fritz Már Jörgensson þjónar fyrir altari. Söngsveitin Ómur ásamt Arnóri Vilbergssyni sjá um tónlist og söng. Allir eru innilega velkomnir.
Kæru kyrrðarbænar vinir, föstudaginn 5.júní kl.12 - 12.20, verður kyrrðarbæn í Kapellu Keflavíkurkirkju. Albert Albertsson leiðir bænina. Það er dásamlegt að koma saman í íhugun og hljóðri bæn í lok viku. Nærast saman í þögn og hvíld og leggja allt það sem á hugum okkar og hjörtum hvílir í hendur Guðs. Allir inninlega velkomnir.
Kæru vinir, nú í sumar verður fjölbreytt messuhald á Suðurnesjum, kirkjurnar deila með sér messuhaldi þannig að það er hægt að finna fjölbreyttur messur á svæðinu í allt sumar þrátt fyrir sumarfrí. Njótum þess að fara á milli og heimsækja nágranna okkar. Hér að neðan er að finna dagskrá sumarsins. 31.maí. Hvítasunna Ytri Njarðvíkurkirkja [...]
Rauður er litur hvítasunnunnar. Litur andans og kærleika, Gleðilega afmælishátíð er jafnan kveðjan á hvítasunnudegi er kristin kirkjan um allan heim fagnar fæðingarhátíð kirkjunnar. Á síðasta kvöldi maímánaðar, hvítasunnukvöldið 31. maí, verður messa í Keflavíkurkirkju kl. 20. Elmar Þór Hauksson syngur við undrleik Arnórs organista. Sr. Erla þjónar.
Kæru vinir, í kvöld sunnudaginn 24.maí kl.20 verður Guðsþjónusta í Keflavíkurkirkju. Við ætlum að eiga saman lágstemmda kvöldstund. Heyrum Guðs orð, biðjum og hlustum á fallega tónlist. Allir eru innilega velkomnir.
Kæru vinir, á fimmtudag 21.maí kl.20 - uppstigningardag verður kvöldmessa í Keflavíkurkirkju. Arnór Vilbergsson og Steinn Erlingsson sjá um að færa okkur tónlist og söng. Séra Fritz Már, þjónar fyrir altari. Komum saman og njótum notalegrar stundar með Guðs orði og fallegum tónum. Hlökkum til að eiga stundina með ykkur og að sjálfsögðu eru allir [...]
Raræn skráning í fermingarfræðslu veturinn 2020-2021 er hafin. Mikilvægt er að fylla út í alla reiti og gæta þess að netföng séu rétt skráð. Linkurinn: http://www.keflavikurkirkja.is/ferming/skraning/ Allar upplýsingar um fermingarfræðslu í Keflavíkurkirkju og dagsetningar fermingadaga 2021 er að finna á heimasíðu Keflavíkurkirkju.