Fréttir

Messa á uppstigningardag 29. maí kl. 11

Uppstigningardagur er dagur aldraðra á Íslandi. Eldey kór eldriborgara mun leiða söng við spil og stjórn Arnórs organista í messu á uppstigningardag 29. maí kl. 11. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Sigurbjörtu sem er messuþjónn. Léttar veitingar eftir stund. Verið velkomin.

By |2025-05-27T09:03:47+00:0027. maí 2025 | 09:02|

Sunnudag 25. maí er kvöldmessa kl. 20

Verið velkomin í nærandi og fallega kvöldmessu í Keflavíkurkirkju. Kórinn okkar flytjur sálma undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla leiðir kvöldstund með aðstoð Helgu og Þóreyju sem eru messuþjónar. Sjáumst!

By |2025-05-23T11:50:19+00:0023. maí 2025 | 11:50|

Batamessa – Vorhátíð vina í bata 18. maí kl. 17

Á sunnudag 18. maí kl. 17 er Batamessa - Vorhátíð vina í bata. Iðkum 11. sporið og hittum aðra vini í bata. Vitnisburður, falleg tónlist frá Alexander Grybos. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Ívari djákna. Páll og Jónína eru messuþjónar. Veitingar í Kirkjulundi að stund lokinni. Öll hjartanlega velkomin.

By |2025-05-15T10:12:47+00:0015. maí 2025 | 10:12|

Vorhátíð sunnudagaskólan og KFUM-K Suðurnes 18. maí kl. 11

Verið velkomin á vorhátíð sunnudagaskólans og KFUM-K Suðurnes á sunnudag 18. maí kl. 11. Sr. Helga Kolbeinsdóttir leiðir stund ásamt Grybosi, Rut, Helgu og Jóni Inga leiðtogum sunnudagaskólans. Regnbogaraddir syngja undir stjórn Arnórs. Við fáum góða gesti úr Latabæ í heimsókn. Andlitsmálning, grillaðar pylsur og hoppukastalar. Hlökkum til að sjá ykkur!  

By |2025-05-15T10:08:47+00:0015. maí 2025 | 10:08|

Síðastu fermingarmessurnar sunnudag 11. maí kl. 11 og 13:30

Síðastu fermingarmessur ársins þegar Holtaskólabörn segja já við að gera Jesú Krist að leiðtoga lífs síns. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn og orgelspili Arnórs organista. Sr. Erla og sr. Fritz Már þjóna ásamt Ívari djákna. Hjónin Halldóra og Helgi eru messuþjónar. Guð blessi framtíð þessara fermingarbarna.

By |2025-05-08T10:12:07+00:008. maí 2025 | 10:12|

Sunnudag 4. maí kl. 11 er fermingar messa

Á sunnudag 4. maí kl. 11 munu Heiðarskólabörn segja já við að gera Jesú Krist sem leiðtoga lífsins. Sr. Fritz Már og sr. Erla þjóna ásamt Ívar djákna. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Systa og Elva eru messuþjónar. Guð blessi framtíð þessara fermingarbarna.

By |2025-04-28T14:02:43+00:0028. apríl 2025 | 14:02|

Fermingarmessa sunnudag 27. apríl kl. 11

Á sunnudaginn næsta munu Myllubakkaskólabörn segja já við að hafa Jesú Krist sem leiðtoga lífs síns. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs. Sr. Erla og sr. Fritz Már þjóna ásamt Ívari djákna. Helga og Þórey eru messuþjónar. Guð varðveiti framtíð þessara fermingarbarna.

By |2025-04-23T11:51:55+00:0023. apríl 2025 | 11:51|

Skátamessa á sumardaginn fyrsta 24. apríl kl. 13:00

Skátamessa er í Keflavíkurkirkju á sumardaginn fyrsta þann 24. apríl kl. 13. Skrúðganga hefst kl. 12:30 frá skátaheimili Heiðarbúa að Keflavíkurkirkju. Skátarnir Helgi og Halldóra eru messuþjónar. Rafn Hlíðkvist sér um tónlist. Sr. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir þjónar fyrir altari. Verið velkomin og gleðilegt sumar!

By |2025-04-22T09:10:24+00:0022. apríl 2025 | 09:10|
Go to Top