Kirkjan og Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag, bjóða til kvöldmessu 28. september kl. 20.
Guðmundur Brynjólfsson, djákni flytur hressandi hugvekju. Kórfélagar syngja Keflavíkursálma og -lög undir stjórn Arnórs organista. Sr. Fritz Már er prestur. Halldóra og Helgi eru messuþjónar. Öll velkomin.
Hvetjum sérstaklega þau sem tilheyra íþrótta- og sjálfboðaliðastarfi Keflavíkur og kirkjunnar að koma.
Sunnudagaskólinn er á sínum stað kl. 11 á sunnudagsmorgun. Öll hjartanlega velkomin.
