Sunnudagaskólinn byrjar 12. janúar kl. 11. Verið velkomin.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í sunnudagskólann 12. janúar kl. 11. Gleðilegt ár! Helga, Grybos, Jón Ingi og Rut.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í sunnudagskólann 12. janúar kl. 11. Gleðilegt ár! Helga, Grybos, Jón Ingi og Rut.
Hátíðarguðsþjónusta á nýársdag 1. janúar 2025. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar mun flytja okkur hugvekju. Kórfélagar munu syngja undir stjórn Arnórs organista. Sr. Fritz Már og sr. Erla munu þjóna ásamt Jónínu og Páli messuþjónum. Öll hjartanlega velkomin.
Aftansöngur á gamlársdag 31. desember kl. 16. Kórinn ætlar að kveðja gamla árið með stæl með því að syngja nýjan texta Ómars Ólafssonar kórfélaga við Abba lag. Sr. Helga þjónar ásamt Ívari djákna. Við hlökkum til að sjá ykkur á síðasta degi ársins
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag í Keflavíkurkirkju. Kórinn syngur undir stjórn Arnórs. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Ívari djákna. Elva Björk er messuþjónn. Öll velkomin.
Verið velkomin á hátíðlega miðnæturstund á aðfangadag jóla. Jóhann Smári Sævarsson syngur með Arnóri organista. Sr. Erla þjónar fyrir altari.
Aftansöngur á aðfangadag jóla kl. 18 í Keflavíkurkirkju. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla og sr. Fritz Már þjóna. Halldóra og Helgi eru messuþjónar. Öll hjartanlega velkomin.
Sunnudagaskólabörn leika helgileik við lestur jólaguðspjallsins. Regnbogaraddir Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Freydísar og Arnórs. Sr. Erla og sr. Fritz Már þjónar ásamt Guðrúnu og Stefáni messuþjónum. Rut, Jón Ingi, Helga og Grybos leiðtogar sunnudagskólans munu taka vel á móti börnunum. Öll hjartanlega velkomin.
Verið velkomin á helgistund í Keflavíkurkirkju á sunnudaginn næsta 15. des kl. 20. Arnór og Grybos ásamt kórnum munu leiða jólasöngva og sr. Fritz Már les uppáhaldsjólasöguna sína um Panov skósmið og Systa er messuþjónn.
Verið velkomin á jólaball Keflavíkurkirkju 8. des kl. 11. Jólahljómsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leikur fyrir jólatrésdansi. Aldrei að vita nema að jólasveinar kíki í hús. Boðið verður uppá piparkökur, djús og kaffi. Kl. 20 mun Arnór organisti fá til sín góða gesti. Ungt söng- og tónlistarfólk af Suðurnesjum sem kemur fram ásamt Jónsa í Svörtum fötum [...]