Starfið er fullt stöðugildi sem felur í sér umsjón með Kirkjugörðum Keflavíkur, viðhald vinnuvéla og tækja, umhirðu garða og þjónustuhúsa, ásamt umsjón með jólalýsingu.
Umsækjandi þarf að hafa vinnuvélaréttindi og góð tök á íslenskri tungu. Kostur er, en ekki skilyrði, að hafa þekkingu eða áhuga á gróðri eða garðyrkju.
Umsóknum skal skilað í tölvuósti á netfangið thorunn@keflavikurkirkja.is Umsóknarfrestur er til 27. ágúst nk.