
Velferðarsjóður
Keflavíkurkirkja sér um Velferðarsjóð Suðurnesja í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar.
Messa og sunnudagaskóli 9. mars kl. 11. Verið hjartanlega velkomin.
Messa og sunnudagaskóli eru á sínum stað á sunnudag 9. mars kl. 11. Leiðtogarnir Helga, Grybos, Jón Ingi og Rut eru með sunnudagaskólann. Sr. Helga Kolbeinsdóttir þjónar fyrir altari með aðstoð Guðrúnar og Stefáns sem eru messuþjónar. Kórinn leiðir sönginn undir stjórn Arnórs organista. Súpa og brauð að athöfn lokinni í Kirkjulundi en fermingarforeldrar og börn sjá um það. Verið öll hjartanlega velkomin í Keflavíkurkirkju.
Æðruleysismessa miðvikudag 5. mars kl. 20
Æðruleysismessur eru fallegar messu þar sem við förum inn á við heyrum Guðsorð, vitnisburð og fallega tóna frá Steinu og Ólöfu. Verið hjartanlega velkomin.
Sunnudagaskólinn á sínum stað á sunnudag þann 29. september kl. 11.
Það verður stuð og stemning í sunnudagaskólanum á sunnudag kl. 11. Við kynnum nýja leiðtoga til leiks þau Jón Inga og Rut. Söngur, brúður og Biblíusaga Verið öll hjartanlega velkomin.
Eide messa á sunnudag þann 29. október kl. 20
Sindre Eide er norskur prestur, sem unnið hefur stórvirki í að kynna trúartónlist fjarlægra þjóða með ólíkum hryn og sveiflu og laga að lútersku helgihaldi. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Sr. Helga Kolbeinsdóttir [...]
Kvöldmessa næsta sunnudag þann 22. september kl. 20.
Verið velkomin í kvöldmessu næsta sunnudagskvöld kl. 20. Kórfélagar syngja við orgelleik Arnórs. Elva Björk er messuþjónn og sr. Erla þjónar fyrir altari.
Skráning í Þjóðkirkjuna
Það er auðvelt að skrá sig í Þjóðkirkjuna. Smelltu hér til þess að fá nánari upplýsingar. Hægt er að fylla út eyðublað og senda til Þjóðskrár rafrænt.






