Sunnudag 5. nóv. kl. 11 er fjölskyldumessa. Regnbogaraddir syngja undir stjórn Freydísar Kneifar, kórstjóra, við undirleik Arnórs organista. Bergrún, Grybos og Helga leiða stundina ásamt sr. Erlu og sr. Fritz. Súpa og brauð í boði í Kirkjulundi.
Sunnudagskvöld 5. nóv kl. 20 er allra heilagra messa haldin hátíðleg. Starfsfólk Heilbrigðisstofnun Suðurnesja tekur þátt í messunni. Við minnumst látinna ástvina er nöfn þeirra verða lesin upp.
Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla og sr. Fritz þjóna. Að lokinni messu býður kirkjan og HSS upp á kaffi og kruðerí í Kirkjulundi.