Fréttir

Fjölskyldumessa og sunnudagaskóli sunnudag 5. október kl. 11

Verið velkomin í Keflavíkurkirkju í fjölskylduguðsþjónustu sunnudag 5. október kl. 11. Sunnudagaskólaleiðtogar taka vel á móti stórum sem smáum. Sr. Erla þjónar ásamt Halldóru og Helga messuþjónum. Himinn og jörð ungmennakór Keflavíkurkirkju syngjur. Súpa og brauð í Kirkjulundi að lokinni athöfn.

By |2025-10-02T09:36:13+00:002. október 2025 | 09:36|

Orgóber – orgelmánuður í október 2025

Það verður mikið um dýrðir hér í Keflavíkurkirkju í október þegar Orgóber - orgelmánuður verður haldin. Orgóber er tileinkaður drottningu hljóðfæranna, sjálfu orgelinu. Tónlistarviðburður í tengslum við Orgóber verður á hverjum sunnudegi í október, þar sem orgelið kemur við sögu. Dagskrá í Orgóber: 5. október kl. 20. Aríur og orgel. Aron Axel Cortes, baritónn [...]

By |2025-09-25T12:23:22+00:0025. september 2025 | 12:22|

Keflavíkurmessa 28. september kl. 20

Kirkjan og Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag, bjóða til kvöldmessu 28. september kl. 20. Guðmundur Brynjólfsson, djákni flytur hressandi hugvekju. Kórfélagar syngja Keflavíkursálma og -lög undir stjórn Arnórs organista. Sr. Fritz Már er prestur. Halldóra og Helgi eru messuþjónar. Öll velkomin. Hvetjum sérstaklega þau sem tilheyra íþrótta- og sjálfboðaliðastarfi Keflavíkur og kirkjunnar að koma. Sunnudagaskólinn er [...]

By |2025-09-25T08:55:24+00:0023. september 2025 | 17:27|

Kvöldmessa 21. september kl. 20

Verið velkomin í nærandi kvöldmessu sunnudag 21. september kl. 20. Sr. Helga Kolbeinsdóttir þjónar fyrir altari. Kór Keflavíkurkirkju syngur fallega Taize sálma undir stjórn og meðleik Arnórs organista. Sigurbjört og Kristín eru messuþjónar.

By |2025-09-19T10:02:51+00:0019. september 2025 | 10:02|

Kvöldmessa sunnudag 14. september kl. 20

Fyrsta kvöldmessa haustsins og dagur Díakoníunnar. Ívar djákni verður með hugvekju og þjónar ásamt sr. Erlu og sr. Fritz Má. Við sameinumst í söng við stjórn og undirleik Arnórs organista. Öll hjartanlega velkomin.

By |2025-09-11T14:09:19+00:0011. september 2025 | 14:09|

Barna og ungmennakórar við Keflavíkurkirkju – skráning hafin!

Æfingar hefjast næsta sunnudag 14. september hjá Regnbogaröddum kl. 13 og Himinn & jörð kl. 13. Umsjón með barnakórunum hafa Freydís Kneif Kolbeinsdóttir kennari og kórstjóri ásamt Arnóri Vilbergssyni organista. Kórarnir syngja reglulega í messum ásamt því að koma fram við hin ýmsu tilefni. Skráningargjald fyrir önn er kr. 8.500. Endilega látið berast til söngelskra [...]

By |2025-09-08T12:50:47+00:008. september 2025 | 12:50|

Fyrirbænahópur byrjar aftur eftir sumarfrí. Öll velkomin.

Fyrirbænahópur í Keflavíkurkirkju hittist annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar í kapellu vonarinnar í Keflavíkurkirkju kl. 17:00. Sameinast er í bæn fyrir hinum ýmsu málefnum sem snerta kirkjuna okkar, samfélagið og náungann. Hver stund hefst á stuttri hugvekju og endar á bæn. Öll eru velkomin að taka þátt í fyrirbænahóp í Keflavíkurkirkju. Skráning er óþörf, [...]

By |2025-09-08T12:30:03+00:008. september 2025 | 12:25|

12 sporin andlegt ferðalag byrjar 15. september kl. 19:00 í Kirkjulundi. Gengið inn bakatil.

12 sporin andlegt ferðalag byrjar aftur mánudaginn 15. september kl. 19:00. 12 sporin andlegt ferðalag er fyrir alla, ekki er gengið út frá því að fólk glími við nein skilgrein vandamál, heldur býður það uppá tækifæri til sjálfsskoðunar og almenna uppbyggingu, sem styrkir okkur til að geta betur tekist á við áskoranir lífsins. Fyrstu þrír [...]

By |2025-09-08T12:21:38+00:008. september 2025 | 12:21|
Go to Top