Fréttir

Æðruleysismessa miðvikudag 5. nóvember kl. 20

Verið velkomin í fallega æðruleysismessu í Keflavíkurkirkju á miðvikudagskvöld 5. nóv kl. 20. Við heyrum vitnisburð, hlýðum á fallega tónlist frá Steinu, Ólöfu og Sóla. Sr. Fritz Már leiðir stund ásamt Brynju sem er messuþjónn. Allir eru velkomnir í æðruleysismessu.  

By |2025-11-03T08:26:35+00:003. nóvember 2025 | 08:26|

Hugmyndafræði hinnar hagsýnu húsmóður 4. nóvember kl. 18

Fjórða sagnakvöldið í Keflavíkurkirkju í tilefni af 110 ára vígsluafmælis. Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir fyrrum formaður sóknarnefndar segir frá tíma sínum í sóknarnefnd og þegar kirkjan var verulega skuldsett. Þar nýtti hún hugmyndafræði hinnar hagsýnu húsmóður til að snúa dæminu við en ekki mörg höfðu trú á hugmyndafræðinni en hún virkaði. Heimilisfriður verður á boðstólnum [...]

By |2025-11-04T08:37:38+00:003. nóvember 2025 | 08:17|

Messur á sunnudag 2. nóvember kl. 11 og kl. 20

Á sunnudag 2. nóvember byrjum við kl. 11 á fjölskyldumessu. Leiðtogar sunnudagaskólans Jón Ingi, Rut, Grybos og Helga hlakka til að sjá börnin. Sr. Erla þjónar ásamt Þóreyju og Helgu messuþjónum. Regnbogaraddir syngja undir stjórn Freydísar og Arnórs. Súpa og brauð í Kirkjulundi að stund lokinni í boði sjálfboðaliða kirkjunnar ásamt fermingarforeldrum og börnum. [...]

By |2025-10-30T10:22:43+00:0030. október 2025 | 09:01|

Sunnudagaskóli og messa 26. október kl. 11

Verið velkomin í sunnudagaskóla og messu 26. október kl. 11. Helga, Rut, Jón Ingi og Grybos eru með bænir, biblíusögur og söng. Sr. Erla leiðir stund ásamt Páli og Jónínu messuþjónum. Kórinn okkar syngur undir stjórn Arnórs organista. Súpa og brauð í Kirkjulundi að messu lokinni í boði fermingarbarna og foreldra ásamt sjálfboðaliðum. Hlökkum til [...]

By |2025-10-21T10:33:10+00:0021. október 2025 | 10:33|

Orgóber – Hátíðartónleikar 26. okt kl. 17.

Næsta sunnudag verður tónlistarveisla í Keflavíkurkirkju þegar allir kórar í Keflavíkurkirkju eru með hátíðartónleika í tilefni af Orgóber - orgelmánuði en einnig af því að frúin okkar, Keflavíkurkirkja, á 110 ára vígsluafmæli í ár. Um er að ræða fjóra kóra; Kór Keflavíkurkirkju, Eldey kór eldri borgara, Himinn & jörð ungmennakór og Regnbogaraddir barnakór. Kórsöngvarar [...]

By |2025-10-21T14:06:53+00:0021. október 2025 | 10:30|

Sunnudagaskóli og messa 19. okt kl. 11

Sunnudagaskóli og messa 19. október kl. 11. Leiðtogarnir Jón Ingi, Rut Páldís, Helga og Jakob Grybos eru með sunnudagaskólann. Sr. Helga Kobeinsdóttir þjónar ásamt Stefáni og Guðrúnu messuþjónum. Alexander Grybos er með tónlist. Súpa og brauð í Kirkjulundi eftir guðsþjónustu útbúin af fermingarbörnum og foreldrum ásamt sjálfboðaliðum Keflavíkurkirkju. Hlökkum til að sjá stóra sem smá.

By |2025-10-14T13:56:34+00:0014. október 2025 | 13:56|

Orgober – Trio Agostini 19. okt kl. 20

Trio Agostini – McGuire. Um er að ræða tvö frönsk horn og orgel. Angelo Agostini horn, Jeffrey A. McGuire horn og Fabio Agostini, orgel. Tríóið spilar klassíska tónlist eftir þekkta meistara. Það er ekki á hverjum degi sem tvö horn og orgel koma saman. Endilega komið og hlýðið á þetta óvenjulega trío. Frítt er inn [...]

By |2025-10-14T13:57:18+00:0014. október 2025 | 10:45|

Sunnudagaskóli og messa 12. október kl. 11

Verið velkomin í Keflavíkurkirkju sunnudag 12. október kl. 11. Leiðtogar sunnudagaskólans Rut, Jón Ingi, Helga og Grybos taka vel á móti smáfólkinu. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Kristínu og Sigurbjörtu messuþjónum. Kórinn okkar syngur undir stjórn Arnórs organista. Súpa og brauð í Kirkjulundi að stund lokinni sem reidd er af fermingarbörnum og foreldrum ásamt sjálfboðaliðum [...]

By |2025-10-07T13:56:03+00:007. október 2025 | 13:56|

Orgóber – Translations 12. okt kl. 20

Annar viðburður Orgóber - orgelmánuði verður 12. október kl. 20 en þá koma Translations, Arngerður María Árnadóttir, orgel og Una Sveinbjarnardóttir, fiðla. Arngerður og Una flytja eigin tónverk. Spunakennd og heillandi tónlist þar sem pípuorgel og fiðla leiða saman magnaðan hljóðheim. Frítt er inn á viðburðin og öll hjartanlega velkomin.

By |2025-10-06T10:09:33+00:006. október 2025 | 10:09|

Orgóber – Aríur og orgel 5. okt kl. 20

Fyrsti viðburður Orgóber - orgelmánaðar er sunnudag 5. október kl. 20. Þá munu Aron Axel Cortes baritónn og Rúnar Þór Guðmundsson tenór syngja valdar aríur við orgelleik Arnórs B. Vilbergssonar organista Keflavíkurkirkju. Öll hjartanlega velkomin og frítt er inn á viðburðinn.

By |2025-10-02T13:24:10+00:002. október 2025 | 13:24|
Go to Top