Kvöldmessa 11. janúar kl. 20
Verið velkomin í nærandi og fallega kvöldmessu sunnudagskvöld 11. janúar kl. 20. Sr. Erla þjónar ásamt Halldóru og Helga messuþjónum. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Hlökkum til að sjá ykkur.
Verið velkomin í nærandi og fallega kvöldmessu sunnudagskvöld 11. janúar kl. 20. Sr. Erla þjónar ásamt Halldóru og Helga messuþjónum. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Hlökkum til að sjá ykkur.
Leiðtogar Helga, Grybos, Jón Ingi og Rut Páldís hlakka til að hitta börnin að nýju eftir jólin á sunnudag 11. janúar kl. 11.
Æðruleysismessa er miðvikudag 7. janúar kl. 20. Æðruleysismessur eru fallegar og einlægar messur. Allir eru velkomnir í æðruleysismessur. Við njótum samveru, fallegrar tónlistar frá Steinunni, Ólöfu og Sóla. Félagi deilir reynslu sinni, styrk og vonum. Sr. Fritz Már leiðir stund ásamt Brynju sem er messuþjónn.
Verið velkomin í hátíðarmessu á nýársdag kl. 14. Kjartan Már bæjarstjóri Reykjanesbæjar flytur hugvekju. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla og sr. Fritz Már þjóna ásamt Halldóru og Helga messuþjónum. Guð gefi ykkur innihaldsríkt komandi ár.
Verið velkomin í gamlársdagsmessu 31. desember kl. 16. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Kórinn mun flytja nýjan texta við lag sem allir þekkja til að koma öllum í áramótagírinn. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Sigurbjörtu og Kristínu messuþjónum. Gleðilegt nýtt ár!
Verið velkomin í hátíðarmessu á jóladag kl. 14. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Guðrúnu og Stefáni messuþjónum. Gleðilega jólahátíð.
Á aðfangadag jóla byrjum við á barnastund "Kraftaverk í Betlehemsstræti" kl. 16. Þá munu börnin í sunnudagaskólanum leika helgileik við lestur jólaguðspjalls. Regnbogaraddir barnakór og Himinn & jörð ungmennakór í Keflavíkurkirkju syngja við stundina. Kl. 18 er Aftansöngur. Kór Keflavíkurkirkju mun syngja undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla og sr. Fritz Már þjóna ásamt [...]
Verið velkomin á Nú mega jólin koma fyrir mér - helgistund í Keflavíkurkirkju þriðja í aðventu 14. des kl. 20. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Helgu og Þóreyju messuþjónum. Sr. Fritz les uppáhalds jólasöguna sína. Arnór organisti leiðir jólasöngva. Sjáumst!
Sunnudag 7. des kl. 20 koma fram aðventugestir Arnórs ásamt hljómsveit. Aðventugestir eru Elín Snæbrá Bergsdóttir, Soffía Huld Ævarsdóttir og Júlía Sól Héðinsdóttir en þær ætla að taka lagið með Kór Keflavíkurkirkju ásamt Himinn & jörð ungmennakór. Stjórnandi er Arnór Vilbergsson organisti. Í hljómsveitinni eru Magnús Már Garðarsson á slagverk, Alexander Grybos á gítar og [...]