Á sunnudag 15. mars er messa og sunnudagaskóli kl. 11. Leiðtogarnir okkar Grybos, Helga, Rut og Jón Ingi eru með sunnudagaskólann. Sr. Helga Kolbeinsdóttir þjónar ásamt Guðrúnu Hákonardóttur sem er messuþjónn. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng við meðleik og stjórn Arnórs organista. Súpa og brauð í Kirkjulundi að lokinni athöfn í boði fermingarbarna og foreldra ásamt sjálfboðaliða. Öll hjartanlega velkomin.