Sunnudag 10. maí er Batamessa kl. 17.

Batamessa er fyrir öll — hlý stund þar sem við fögnum bata, von og kraftinum í því að taka ný skref. Gleðjumst yfir árangrinum sem Tólf spora starfið hefur gefið, með lofgjörð og fyrirbæn.

Ívar djákni þjónar ásamt Jónínu og Önnu Lóu. Kór Keflavíkurkirkju syngur við meðleik og stjórn Arnórs. Kaffi og hressing eftir stund.