Fréttir

Sunnudagaskóli kl. 11 og kvöldmessa kl. 20 sunnudag 1. febrúar

Á sunnudag 1. febrúar er sunnudagaskólinn kl. 11. Þar munu leiðtogarnir Helga, Jón Ingi, Rut og Grybos vera með biblíusögu, bænir og söngva. Hlökkum til að sjá ykkur. Kl. 20 sama dag er kvöldmessa. Sr. Erla þjónar ásamt Páli og Jónínu messuþjónum. Kórinn okkar leiðir söng við stjórn og meðleik Arnórs organista. Öll hjartanlega [...]

By |2026-01-29T10:53:51+00:0029. janúar 2026 | 10:37|

Kvöldmessa 11. janúar kl. 20

Verið velkomin í nærandi og fallega kvöldmessu sunnudagskvöld 11. janúar kl. 20. Sr. Erla þjónar ásamt Halldóru og Helga messuþjónum. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Hlökkum til að sjá ykkur.

By |2026-01-07T10:42:14+00:007. janúar 2026 | 10:42|

Æðruleysismessa 7. janúar kl. 20

Æðruleysismessa er miðvikudag 7. janúar kl. 20. Æðruleysismessur eru fallegar og einlægar messur. Allir eru velkomnir í æðruleysismessur. Við njótum samveru, fallegrar tónlistar frá Steinunni, Ólöfu og Sóla. Félagi deilir reynslu sinni, styrk og vonum. Sr. Fritz Már leiðir stund ásamt Brynju sem er messuþjónn.

By |2026-01-06T14:28:40+00:006. janúar 2026 | 14:26|

Hátíðarmessa á nýársdag kl. 14

Verið velkomin í hátíðarmessu á nýársdag kl. 14. Kjartan Már bæjarstjóri Reykjanesbæjar flytur hugvekju. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla og sr. Fritz Már þjóna ásamt Halldóru og Helga messuþjónum. Guð gefi ykkur innihaldsríkt komandi ár.

By |2025-12-19T11:09:34+00:0019. desember 2025 | 11:09|

Gamlársdagur í Keflavíkurkirkju

Verið velkomin í gamlársdagsmessu 31. desember kl. 16. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Kórinn mun flytja nýjan texta við lag sem allir þekkja til að koma öllum í áramótagírinn. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Sigurbjörtu og Kristínu messuþjónum. Gleðilegt nýtt ár!

By |2025-12-19T10:04:29+00:0019. desember 2025 | 10:03|
Go to Top