Sjáumst í Keflavíkurkirkju á sunnudaginn 22. nóvember kl. 11 en þá er sunnudagaskóli og messa. Leiðtogar sunnudagaskólans taka vel á móti minnsta fólkinu. Kórinn okkar leiðir söng við meðleik Arnórs organistans. Sr. Helga þjónar ásamt nöfnu sinni Helgu og þóreyju messuþjónum. Súpa og brauð í Kirkjulundi að lokinni guðsþjónustu. Öll hjartanlega velkomin!
