Sögusýningin Kirkja er samfélag – 110 ára vígsluafmæli Keflavíkurkirkju og 25 ára afmæli Kirkjulundar opnar miðvikudaginn 3. september kl. 17 í Kirkjulundi. Dagný Maggýjar verður sýningarstjóri þar sem byggingar- og endurbótasaga Keflavíkurkirkju sem og hönnunar- og byggingarsaga Kirkjulundar verða gerð skil á söguspjöldum sem munu hanga á veggjum Kirkjulundar. Auk þess verða til sýnis gripir, munir og klæði sem bæði eru varðveitt í geymslurými kirkjunnar og á Byggðasafni Reykjanesbæjar.
