Orgóber 2026 – frítt er á alla viðburði í Orgóber
Í október fær orgelið að njóta sín í Keflavíkurkirkju þegar Orgóber, orgelmánuður Keflavíkurkirkju, fer fram.
Alla sunnudaga í október bjóðum við upp á fjölbreytta tónlist þar sem orgelið er í fyrirrúmi, ýmist eitt og sér eða í samspili við söng. Á dagskránni verða klassískar söngperlur, klassísk orgelverk, tónlist með barnakórum og að lokum þekkt lög og ógleymanleg stef úr kvikmyndum.
4. október kl. 20
Elmar Þór Hauksson tenór syngur söngperlur við meðleik Arnórs Vilbergssonar, organista Keflavíkurkirkju.
11. október kl. 20
Nikita Morozov leikur klassísk orgelverk.
18. október kl. 17
Barnakórar Keflavíkurkirkju syngja ásamt Skólakór Sandgerðisskóla.
25. október kl. 17
Jónas Þórir, organisti í Bústaðakirkju, leikur þekkt lög og stef úr kvikmyndum.
Fjórir sunnudagar, fjórar ólíkar tónlistarstundir og orgelið í aðalhlutverki.
Verið hjartanlega velkomin í Keflavíkurkirkju í Orgóber!
