Verið hjartanlega velkomin í messu og sunnudagaskóla 24. nóvember kl. 11. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Brynju sem er messuþjónn. Leiðtogar sunnudagaskólans taka vel á móti minnsta fólkinu fyrst í kirkju og svo færa þau sig yfir í Kirkjulund. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs organista. Súpa og brauð í safnaðarheimili að athöfn lokinni.