Sunnudag 21. júní kl. 20 er kvöldmessa í Kálfatjarnarkirkju. Keflavíkurkirkja tekur þátt í Sumarmessum á Suðurnesjum sem er samstarfsverkefni kirkna á Suðurnesjum. Kór Keflavíkurkirkju syngur við meðleik og stjórn Arnórs organista. Sr. Erla leiðir kvöldstund. Messukaffi í þjónustuhúsið við hlið kirkju. Öll hjartanlega velkomin.