Sunnudag 27. september verður sunnudagaskólinn á sínum stað kl. 11. Brúðir, bænir og biblíusögur. Leiðtogarnir Grybos, Jón Ingi, Rut og Helga leiða stundina. Öll hjartanlega velkomin.

Keflavíkurkirkja og Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag, bjóða til kvöldmessu 27. september kl. 20.
Sveinn Ólafur Magnússon, formaður Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur flytur erindi. Kórfélagar syngja við meðleik og stjórn Arnórs organista. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Systu og Stínu eru messuþjónar. Öll velkomin.
Hvetjum sérstaklega þau sem tilheyra íþrótta- og sjálfboðaliðastarfi Keflavíkur og kirkjunnar að koma.
