Á sunnudag 1. nóvember er fjölskyldumessa og sunnudagaskóli kl. 11. Helga, Grybos, Rut og Jón Ingi eru með sunnudagaskólann. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Guðrúnu og Stefáni messuþjónum. Súpa og brauð í Kirkjulundi að lokinni athöfn í boði fermingarforeldra og barna.

Kl. 20 er Allraheilagra messa. Kór Keflavíkurkirkju syngur við meðleik og stjórn Arnórs organista
Sr. Erla og sr. Fritz þjóna ásamt Halldóru og Helgu messuþjónum. Starfsfólk HSS og prestar lesa upp nöfn þeirra sem létust á sl. ári. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja ásamt Keflavíkurkirkju boða uppá kvöldkaffi.
