Á fyrsta sunnudegi í aðventu eru tvær messur í Keflavíkurkirkju:
kl. 11:00, Við kveikjum einu kerti á. Fermingarbörn leiða helgistund með lestrum og sálmasöng úr nýju sálmabókinni. Arnór Vilbergsson leiðir tónlistina, sr Fritz Már þjónar. Súpa í boði eftir stundina.
Kl. 20:00 Hátíð fer að höndum ein. Kór Keflavíkurkirkju syngur klassíska aðventusálma og jólaperlur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Sr. Fritz Már þjónar.
Komum saman á fyrsta sunnudegi aðventu og njótum aðdraganda jólanna saman, heyrum góð orð og fallega tónlist.
Verið öll innilega velkomin.