Fyrirbænahópur í Keflavíkurkirkju hittist annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar í kapellu vonarinnar í Keflavíkurkirkju kl. 17:00. Sameinast er í bæn fyrir hinum ýmsu málefnum sem snerta kirkjuna okkar, samfélagið og náungann. Hver stund hefst á stuttri hugvekju og endar á bæn. Öll eru velkomin að taka þátt í fyrirbænahóp í Keflavíkurkirkju. Skráning er óþörf, nóg er að mæta.
