Á sunnudag 18. maí kl. 17 er Batamessa – Vorhátíð vina í bata. Iðkum 11. sporið og hittum aðra vini í bata. Vitnisburður, falleg tónlist frá Alexander Grybos. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Ívari djákna. Páll og Jónína eru messuþjónar. Veitingar í Kirkjulundi að stund lokinni. Öll hjartanlega velkomin.