Verið velkomin í fallega og nærandi æðruleysismessu í Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 11. nóvember kl. 20. Sr. Fritz Már leiðir stund ásamt Brynju sem er messuþjónn. Alexander Grybos sér um tónlist. Vitnisburður, falleg tónlist og guðsorð. Öll hjartanlega velkomin.
