Á aðfangadag jóla byrjum við á barnastund „Kraftaverk í Betlehemsstræti“ kl. 16. Þá munu börnin í sunnudagaskólanum leika helgileik við lestur jólaguðspjalls. Regnbogaraddir barnakór og Himinn & jörð ungmennakór í Keflavíkurkirkju syngja við stundina.

Kl. 18 er Aftansöngur. Kór Keflavíkurkirkju mun syngja undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla og sr. Fritz Már þjóna ásamt Helgu messuþjón.

Kl. 23:30 er miðnæturstund „Nóttin var sú ágæt ein“ Jóhann Smári Sævarsson syngur við meðleik Arnórs organista. Sr. Erla leiðir stund.

Guð blessi jólahátíð ykkar nær og fjær.