Næsta sunnudag 29. nóvember er fyrsti í aðventu og við kveikjum á fyrsta kertinu á aðventukransinum í sunnudagaskólanum kl. 11. Leiðtogar sunnudagaskólans hlakka til að sjá unga sem aldna. Regnbogaraddir barnakór Keflavíkurkirkju syngur við stjórn Freydísar og Arnórs. Sr. Erla leiðir stund ásamt Sigurbjörtu og Kristínu messuþjónum. Súpa og brauð í Kirkjulundi eftir guðsþjónustu. Öll hjartanlega velkomin.

Kl. 20 er hátíðlegt aðventukvöld í Keflavíkurkirkju. Kórinn okkar flytur sígilda jólasálma og fallegar jólaperlur sem koma okkur í sannkallað hátíðarskap. Arnór organisti sér um kórstjórn og meðleik og sr. Erla leiðir stundina ásamt messuþjónunum Stefáni og Guðrúnu. Eigum saman notalega stund í birtu aðventunnar og njótum fallegs tónlistarflutnings, kyrrðar og samveru.
