Sunnudaginn 25. október kl. 17:00 bjóðum við til spennandi tónleika í Keflavíkurkirkju þar sem kvikmyndatónlistin fær að hljóma í nýjum búningi!
Jónas Þórir, organisti í Bústaðakirkju, sest við orgel kirkjunnar og leikur þekkt lög og stef úr kvikmyndum. Hér gefst einstakt tækifæri til að upplifa töfra kvikmyndatónlistarinnar í mögnuðum hljóðheimi kirkjuorgelsins.
Tónleikarnir eru hluti af Orgóber, orgelmánuði Keflavíkurkirkju, þar sem orgelið fær að njóta sín í allri sinni fjölbreytni. Verið hjartanlega velkomin til að njóta fallegrar tónlistar í notalegu umhverfi! Frítt er inn og öll velkomin.