Sunnudaginn 18. október kl. 17 verður sannkölluð sönggleði í Keflavíkurkirkju þegar þrír glæsilegir kórar barna og ungmenna koma saman og gleðja okkur með fallegum söng.
Regnbogaraddir, barnakór Keflavíkurkirkju, og Himinn & Jörð, ungmennakór Keflavíkurkirkju, syngja undir stjórn Freydísar Kneifar Kolbeinsdóttur og meðleik Arnórs Vilbergssonar organista.
Skólakór Sandgerðisskóla syngur undir stjórn Sigurbjargar Hjálmarsdóttur og Elsu Mörtu aðstoðar kórstjóra.
Það er fátt sem yljar hjartanu meira en söngur barna og ungmenna og við hlökkum til að eiga með ykkur fallega tónlistarstund þar sem ungar raddir fá að njóta sín í dásamlegum hljómburði kirkjunnar.
Verið hjartanlega velkomin í Keflavíkurkirkju og njótið með okkur sönggleði barnanna!
