Það verður fjör hér í kirkjunni á sunnudaginn kl. 11 þegar vorhátíð KFUM-K Suðurnes og sunnudagaskólans verður haldin.
Við byrjum í kirkjunni þar sem sr. Fritz Már leiðir stund ásamt Helgu, Grybos, Rut og Jóni Inga leiðtogum sunnudagaskólans. Ef veður leyfir þá höldum við út í garð við kirkjuna. Þar munu ræningjar nokkrir úr Kardimommubænum skemmta.
Hoppukastalar verða í boði KFUM-K Suðurnes. Grillaðar pylsur og andlitsmálning.
Öll hjartanlega velkomin.