12 sporin andlegt ferðalag byrjar aftur mánudaginn 15. september kl. 19:00. 12 sporin andlegt ferðalag er fyrir alla, ekki er gengið út frá því að fólk glími við nein skilgrein vandamál, heldur býður það uppá tækifæri til sjálfsskoðunar og almenna uppbyggingu, sem styrkir okkur til að geta betur tekist á við áskoranir lífsins. Fyrstu þrír fundirnir eru opnir og öll velkmon. Ekki þarf að skrá sig, bara mæta. Á fjórða fundi er hópnum lokað og reiknað með að þeir sem þá mæti ætli að vera með í vetur.
Umsjón með starfinu hefur Ívar Valbergsson djákni við Keflavíkurkirkju, honum til aðstoðar eru þær Jónína Guðbjörg og Anna Lóa.
