Börnin þurfa að velja sér eitt vers úr Biblíunni sem fermingarvers. Hér eru nokkur sígild vers sem koma til greina.
- Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrkan gerir. Fil. 4:13
- Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera. Því að þetta er lögmálið og spámennirnir. Matt. 7:12
- Ákalla mig á degi neyðarinnar, og ég mun frelsa þig, og þú skalt vegsama mig. Sálm.50:15
- Biðjið, og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Matt. 7:7
- Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns. Sálm. 100:5
- Drottin er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast? Sálm. 27:1
- Drottinn er réttlátur á öllum vegum sínum og miskunnsamur í öllum verkum sínum.. Sálm. 145:13b
- Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. Sálm.121:5
- Drottinn er öllum góður og miskunn hans hvílir yfir allri sköpun hans. Sálm. 145:9
- Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. Sálm. 121:7
- Drottinn, þú ert minn Guð. Ég vegsama þig, ég lofa nafn þittþví að þú hefur unnið furðuverk, framkvæmt löngu ráðin ráð sem í engu brugðust. Jes. 25:1
- Ef Drottinn byggir ekki húsið erfiða smiðirnir til ónýtis. Sálm. 127:1
- En Guði er enginn hlutur um megn. Lúk. 1:37
- Engill Drottins setur vörð kringum þá er óttast hann og frelsar þá. Sálm. 34:8
- Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. Jóh. 10:11
- Ég hef Drottin ætíð fyrir augum, þegar hann er mér til hægri handar hnýt ég ekki. Sálm. 16:8
- Ég vil lofa Drottin á meðan ég lifi, lofsyngja Guði mínum meðan ég er til. Sálm. 146:2
- Ég vil þakka þér, Drottinn, af öllu hjarta, kunngjöra öll máttarverk þín. Sálm. 9:2
- Ég vil vegsama Drottin alla tíma, ætíð sé lof hans mér í munni. Sálm. 34:2
- Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá. Sálm. 37:5
- Gott mannorð er dýrmætara en mikill auður, vinsældir eru betri en silfur og gull. Orðskv. 22:1
- Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. Sálm. 46:2
- Hann veitir kraft hinum þreytta og þróttlausum eykur hann mátt. Jesaja 40:29
- Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. Jóh. 14:1
- Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Sálm. 121:2
- Í friði leggst ég til hvíldar og sofna því að þú einn, Drottinn, lætur mig hvíla óhultan í náðum. Sálm. 4:9
- Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. Jóh. 1:1
- Í þínar hendur fel ég anda minn, þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð! Sálm 31:6
- Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.” Jóh. 11:25
- Jesús sagði: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins. Jóh 8:12
- Jesús segir við hann: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig.” Jóh. 14:6
- Kenn mér að gera vilja þinn því að þú ert Guð minn, þinn góði andi leiði mig um slétta braut. Sálm. 143:10
- Kærleikurinn breiðir yfir allt, trúir öllu , vonar allt, umber allt. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. I. Kor 13:7
- Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld. Matt. 11:28
- Lát engan líta smáum augum á æsku þína en ver fyrirmynd trúaðra í orði og hegðun, í kærleika, trú og hreinlífi. I. Tim. 4:12
- Leitið Drottins meðan hann er að finna, ákallið hann meðan hann er nálægur. Jesaja 55:6
- Lítið ekki aðeins á eigin hag heldur einnig annarra. Verið með sama hugarfari sem Kristur Jesús var. Fil. 2:4-5
- Lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans. Sálm 103:2
- Náð mín nægir þér því að mátturinn fullkomnast í veikleika. II. Kor. 12:9
- Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur. Sálm. 145:8
- Og Jesús sagði við alla: „Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér. Lúk. 9:23
- Óttast eigi því að ég er með þér, vertu ekki hræddur því að ég er þinn Guð. Ég styrki þig, ég hjálpa þér, ég styð þig með sigrandi hendi minni. Jes. 41:10
- Sá sem ástundar réttlæti og kærleika öðlast líf, velgengni og heiður. Orðskv. 21:21
- Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda. Sálm. 51:12
- Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. Jóh 3:16
- Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða. Matt. 5:9
- Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá. Matt. 5:8
- Sælir eru hógværir, því að þeir munu jörðina erfa. Matt. 5:5
- Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða. Matt. 5:7
- Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu saddir verða. Matt 5:6
- Varðveit mig sem sjáaldur augans, fel mig í skugga vængja þinna. Sálm. 17:8
- Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Sálm. 16:1
- Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er hreint, skjöldur er hann öllum sem leita hælis hjá honum. Sálm. 18:31
- Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. Sálm. 86:11
- Þakkið Drottni því hann er góður, því miskunn hans varir að eilífu. Sálm. 107:1
- Þér eruð vinir mínir ef þér gerið það sem ég býð yður. Jóh. 15:14
- Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum. Sálm. 119:105
- Þótt ég fari um dimman dal óttast ég ekkert illt því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Sálm. 23:4
- Þótt ég talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika, væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla. I. Kor. 13:1
- Þú ert von mín, Drottinn, þú, Drottinn, ert athvarf mitt frá æsku, Sálm. 71:15
- þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og öllum mætti þínum. . . . Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Mark. 12:30-31
- Því að ég þekki sjálfur þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með yður, segir Drottinn, fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. Jer. 29:11
- Því að ég, Drottinn, er Guð þinn, ég held í hægri hönd þína og segi við þig: „Óttast eigi, ég bjarga þér.“ Jesaja 41:13
- Því að orð krossins er heimska þeim er stefna í glötun en okkur sem hólpin verðum er það kraftur Guðs. I. Kor 1:18
- Því að þín vegna býður hann út englum sínum til þess að gæta þín á öllum vegum þínum. Sálm. 91:11
Orðskviðirnir
- Sonur minn, þegar skálkar ginna þig gegndu þeim þá ekki (Orðskv. 1.10)
- En sá sem hlýðir á mig mun búa óhultur og öruggur og engri ógæfu kvíða (Orðskv.1.33)
- Drottinn veitir speki, af munni hans kemur þekking og hyggindi (Orðskv. 2.6)
- Hann geymir hinum ráðvöndu gæfuna og er skjöldur þeirra sem breyta grandvarlega (Orðskv. 2.7)
- Því að hann vakir yfir stígum réttlætisins og varðveitir veg sinna réttsýnu (Orðskv. 2.8)
- Aðgætnin mun vernda þig og hyggindin varðveita þig (Orðskv. 2.11)
- Hinir hreinlyndu munu byggja landið og hinir ráðvöndu verða þar áfram (Orðskv. 2.21)
- Sonur minn, gleymdu ekki kenningu minni og hjarta þitt varðveiti ráð mín (Orðskv. 3.1)
- Kærleikur og tryggð munu aldrei yfirgefa þig. Festu þau um háls þér og ritaðu þau á spjald hjarta þíns (Orðskv. 3.3)
- Treystu Drottni af öllu hjarta en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit (Orðskv 3.)
- Minnstu hans á öllum vegum þínum, þá mun hann gera leiðir þínar greiðar (Orðskv. 3.6)
- Sonur minn, hafnaðu ekki leiðsögn Drottins og láttu þér ekki gremjast umvöndun hans (Orðskv. 3.11)
- Drottinn agar þann sem hann elskar og lætur þann son finna til sem hann hefur mætur á (Orðskv. 3.12)
- Sæll er sá maður sem öðlast speki, sá sem hlýtur hyggindi (Orðskv. 3.13)
- Drottinn grundvallaði jörðina með visku og kom himninum fyrir af speki (Orðskv 3.19)
- Synjaðu ekki góðs þeim sem þarfnast ef það er á þínu valdi að veita það (Orðskv. 3.27)
- Deildu ekki við neinn að ástæðulausu hafi hann ekki gert neitt á hlut þinn (Orðskv. 3.30)
- Háðska menn hæðir hann en hógværum veitir hann náð (Orðskv. 3.34)
- Góðan lærdóm veiti ég yður, hafnið ekki tilsögn minni (Orðskv. 4.2)
- Aflaðu þér visku, aflaðu þér hygginda. Gleymdu ekki orðum mínum og víktu ekki frá þeim (Orðskv. 4.5)
- Hafnaðu ekki viskunni, hún mun varðveita þig, elskaðu hana og þá mun hún vernda þig (Orðskv. 4.6)
- Farðu ekki brautir ranglátra og gakktu ekki á vegi vondra manna (Orðskv. 4.14)
- Gata réttlátra er eins og bjartur árdagsljómi, því bjartari sem nær líður hádegi (Orðskv. 4.18)
- Vegur ranglátra er eins og niðamyrkur, þeir vita ekki um hvað þeir hrasa (Orðskv. 4.19)
- Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru því að þar eru uppsprettur lífsins (Orðskv. 4.23)
- Þér óreyndu, lærið hyggindi, og þér heimskingjar, lærið skynsemi (Orðskv 8.5)
- Viska er betri en perlur, engir fjársjóðir jafnast á við hana (Orðskv. 8.11)
- Ég, spekin, dvelst hjá viskunni, hjá mér býr dómgreind og þekking (Orðskv. 8.12)
- Ég elska þá sem mig elska og þeir finna mig sem leita mín (Orðskv. 8.17)
- Hlýðið mér, synir, því að sælir eru þeir sem halda sig á vegum mínum (Orðskv. 8.32)
- Hlustið á hvatningu mína, svo að þér verðið vitrir, og hafnið henni ekki (Orðskv. 8.33)
- Sá sem finnur mig finnur lífið og öðlast velþóknun Drottins (Orðskv. 8.35)
- Málæðinu fylgja yfirsjónir en sá breytir hyggilega sem hefur taumhald á tungu sinni (Orðskv. 10.19)
- Tunga hins réttláta er hreint silfur, vit hins óguðlega er lítils virði (Orðskv. 10.20)
- Kærleiksríkur maður vinnur sjálfum sér gagn, harðlyndur maður vinnur sér mein (Orðskv. 11.17)
- Hinn ranglági eignast sýndarávinning en sá sem réttlæti sáir hlýtur ósvikin laun (Orðskv. 11.18)
- Að stunda réttlæti leiðir til lífs, að elta hið illa leiðir til dauða (Orðskv. 11.19)
- Örlátur maður hlýtur ríkulega umbun og sá sem gefur öðrum að drekka fær þorsta sínum svalað (Orðskv. 11.25)
- Sá sem leitar góðs leitar velþóknunar en sá sem sækist eftir illu verður fyrir því (Orðskv. 11.27)
- Sá sem elskar aga elskar þekkingu en sá sem hatar umvöndun er heimskur (Orðskv. 12.1)
- Ranglætið veitir engum fótfestu en réttlætið stendur djúpum rótum (Orðskv. 12.3)
- Bræði afglapans birtist strax, greindur maður dylur gremju sína (Orðskv. 12.16)
- Vanhugsuð orð eru sem sverðalög en tunga hins vitra græðir (Orðskv. 1218)
- Sönn orð standa að eilífu en lygimál aðeins skamma hríð (Orðskv. 12.19)
- Hins réttláta bíður ekkert böl en ógæfan hleðst á hinn rangláta (Orðskv. 12.21)
- Lygarar eru Drottni andstyggð en hinir sannorðu eru yndi hans (Orðskv. 12.22)
- Sá sem gætir munns síns varðveitir líf sitten glötun bíður hins lausmála (Orðskv. 13.3)
- Ljós réttlátra logar skærten á lampa ranglátra slokknar (Orðskv. 13.9)
- Viska kvennanna reisir húsið en fíflska þeirra rífur það niður með berum höndum (Orðskv. 14.1)
- Sá sem breytir rétt óttast Drottin en sá sem fyrirlítur hann fer villur vegar (Orðskv. 14.2)
- Margur vegurinn virðist greiðfær en endar þó í helju (Orðskv. 14.12)
- Sá sem er seinn til reiði er skynsamur en hinn bráðláti setur heimskuna í hásæti (Orðskv. 14.29)
- Hugarró er líkamanum líf en öfund er eitur í beinum hans (Orðskv. 14.30)
- Mildilegt svar stöðvar bræði en fúkyrði vekja reiði (Orðskv. 15.1)
- Bráðlyndur maður vekur deilur en sá sem seinn er til reiði stillir þrætur (Orðskv. 15.18)
- Að óttast Drottin er leiðsögn til visku, hógværð er undanfari sæmdar (Orðskv. 15.33)