Forðum í bænum Betlehem
var borinn sá sem er
sonur Guðs sem sorg og þraut
og syndir manna ber
:.:Hlustið englar himnum af
þeim herra greina frá
sem lagður var í
lágan stall, en lýsir jörðu á:.:
Hirðum sem vöktu heiðum á
og hjarða gættu um nótt
englar gleði fluttu fregn
um frelsun allri drótt
[viðlag]
Vitringum lýsti langan veg
sú leiðarstjarna hrein
sem ljóma heimi breyskum ber
og bætir hölda mein
[viðlag]