Útibú frá Kirkjuhúsinu hefur verið starfrækt í Keflavíkurkirkju síðan í febrúar 2008. Þar er til sölu úrval af þeim vörum sem eru á boðstólnum á Laugaveginum, meðal annars Biblíur, barnaefni og ýmsir munir sem tengjst trú og trúarlífi. Hér á myndinni má sjá til dæmis sjá handunna krossa frá El Salvador sem kaupa má í versluninni.

Verslunin er opin í tengslum við guðsþjónustur en einnig má hafa samband við starfsfólk kirkjunnar ef fólk vill kaupa varning.