Himinn lofar góðu sunnudagskvöldið 21. júní kl. 20 er við höldum í árlega göngumessu um gamla bæinn í Keflavík.

Helgi Valdimar Biering leiðir okkur í fróðleik á milli sögureita á elsta svæði Keflavíkur. Gengið verður frá kirkjutröppum.

Arnór organisti kallar okkur í söng við ukulelespil. Sr. Erla biður bænir og blessar undir berum himni.

Að lokinni göngu sameinumst við í kvöldkaffi í garði sóknarprestsins á Brunnstíg.

Verið velkomin í hreyfanlega helgistund og saman myndum við gott samfélg í Jesú nafni.