26. janúar 2012

Utanbókarlærdómur fermingarbarna

Þetta þurfa fermingarbörnin að kunna:

Postullega trúarjátningin

Ég trúi á Guð, föður almáttugan, skapara himins og jarðar.

Ég trúi á Jesú Krist, hans einkason, Drottinn vorn, sem getinn er af heilögum anda, fæddur af Maríu mey, píndur á dögum Pontíusar Pílatusar, krossfestur, dáinn og grafinn, steig niður til heljar, reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum, steig upp til himna, situr við hægri hönd Guðs föður almáttugs og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða.

Ég trúi á heilagan anda, heilaga almenna kirkju, samfélag heilagra, fyrirgefningu syndanna, upprisu mannsins og eilíft líf.



Litla Biblían

Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.
(Jóh. 3.16)

Gullna reglan

Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra

Son Guðs ertu með sanni,
sonur Guðs, Jesús minn,
son Guðs, syndugum manni
sonar arf skenktir þinn,
son Guðs einn eingetinn.
Syni Guðs syngi glaður
sérhver lifandi maður
heiður í hvert eitt sinn.

(Hallgrímur Pétursson)

Ó, faðir, gjör mig lítið ljós
um lífs míns stutta skeið,
til hjálpar hverjum hal og drós,
sem hefur villzt af leið

Ó, faðir, gjör mig blómstur blítt,
sem brosir öllum mót
og kvíðalaust við kalt og hlýtt
er kyrrt á sinni rót.

Ó, faðir, gjör mig ljúflingslag,
sem lífgar hug og sál
og vekur sól og sumardag,
en svæfir storm og bál.

(Matthías Jochumsson)



Til baka