22. janúar 2012
Fermingarfræðslan hafin
Kæru foreldrar Fermingarfræðslan hófst á ný í síðustu viku samkvæmt dagskrá. Því miður verðum við að breyta fræðslutímanum hjá stúlkunum vegna álags á húsnæði kirkjunnar. Biðjumst við velvirðingar ef það leiðir til óhagræðis. Fræðslan verður sem hér segir: Fermingarstúlkur - mánudagurinn 23. janúar kl. 16-18 Fermingarfræðsla í Kirkjulundi (áður auglýst þriðjudaginn 17. janúar) Þau fermingarbörn sem eiga eftir að skila verkefnum mega skila þeim í fræðslutímunum. Einnig minnum við á messumætingar sem eru 8 yfir allan veturinn. Viljum við hvetja ykkur til þess að fylgjast með því að börnin mæti og endilega komið í messurnar líka! Þeir fermingardrengir sem ekki komust í fræðsluna síðasta mánudag geta komið þann 23. 1. kl. 16 og setið fræðslutímann með fermingarstúlkum.
Til baka
|