16. janúar 2012
Guðsþjónusta 22. janúar
Sunnudaginn 22. janúar kl. 11:00 er guðsþjónusta í Keflavíkurkirkju. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Sr. Erla Guðmundsdóttir stýrir barnastarfinu. Félag Vestfirðinga á Suðurnesjum mætir í messuna. Messuþjónar taka þátt. Súpuþjónar bjóða til hádegisverðar í Kirkjulundi að athöfn lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.
Til baka
|
|