Keflavíkurkirkja var vígð 14. febrúar 1915 og á hún því 95 ára afmæli á þeim degi á þessu ári. Viðeigandi er að efna til fagnaðar af því tilefni, bæði er aldurinn merkilegur og svo hitt að ytri aðstæðum er svo háttað að kirkjan má gjarnan vekja athygli á því sem gert er á hennar vegum. Hið síðara mun setja svip sinn á dagskrána en markmið hennar er ekki aðeins að kynna starfið í Keflavíkurkirkju heldur einnig það sem nágrannar og samstarfsfólk Keflavíkurkirkju hafa fram að færa. Dagskráin mun standa frá sunnudeginum 14/2 til laugardagsins 20/2. Það helsta úr kirkjustarfinu verður kynnt og svo verður einn liður er hefur yfirskriftina „Vinir og vandamenn“ þar sem samstarfsfólkið miðlar af því sem það fæst við.
14/2 Sunnudagur
Kl. 11:00 Guðsþjónusta: frumfluttir sálmar sem ortir eru í tilefni tímamótanna, þ.á.m. „Vor kirkja sem lýsir oss leið“ e. sr. Skúla S. Ólafsson, við lag Inga T. Lárussonar. Víðtæk þátttaka leikmanna og listafólks af svæðinu.
Kl. 12:00 Opið hús í kirkjunni með fjölbreyttri dagskrá, m.a. sögusýningu í safnaðarheimili, endurbætt heimasíða tekin í notkun, viðtöl við þátttakendur í kirkjustarfinu sýnd á skjá og menningarhópurinn stendur fyrir ýmsum viðburðum.
Kl. 20:00 Vinir og vandamenn: Kórar Hjálpræðishersins í Reykjanesbæ standa fyrir gospelmessu ásamt heimafólki.
15/2 Mánudagur
kl. 17:00 Matreiðslukynning, framandlegir fiskréttir.
Kl. 20:00 Vinir og vandamenn: Opið hús hjá AA-mönnum.
16/2 Þriðjudagur
Kl. 16:00 Fiskimarkaður á föstunni: Kærleikshópur kirkjunnar efnir til fiskimarkaðs til styrktar Velferðarsjóðnum. Þátttakendur á matreiðslukynningu (15/2) elda framandlega fiskrétti.
Kl. 19:00 Vinir og vandamenn: sr. Sigurður Grétar Sigurðsson mætir með hóp úr Útskálaprestakalli og efnir til lofgjörðar í kirkjunni.
Kl. 19:45 Sýning frá ráðstefnunni Global Leadership Summit sem fjallar um leiðtoga í kristnum söfnuðum, sjá www.gls.is
17/2 Miðvikudagur
Kl. 10:00 Bókakynning á foreldramorgni.
12:10 Vinir og vandamenn: sr. Elínborg Gísladóttir kynnir Centering prayer.
Kl. 20:00 Opin kóræfing.
18/2 Fimmtudagur
Kl. 10:00 Ljós um nótt: Söngleikur fluttur í kirkjunni fyrir leikskólabörn á svæðinu. Talenturnar leika undir.
Kl. 17:00 Ljós um nótt: Opin sýning.
19/2 Föstudagur
Kl. 11:00 Vinir og vandamenn: Kjalarnessprófastsdæmi og Reykjanesbær standa ásamt Keflavíkurkirkju fyrir málþingi um Áfram ábyrg verkefnið og lærdóminn sem af því má draga.
20/2 Laugardagur
Kl. 10:00 Æskulýðsdagskrá í umsjón æskulýðshópsins, KFUM og KFUK og Farskóla þjóðkirkjunnar.
Kl. 14:00 Vinir og vandamenn: Myndlistamenn í Reykjanesbæ efna til myndlistaverkstæðis, þar sem börn fá leiðsögn við að mála biblíuleg stef.