Safnaðarfélag Keflavíkurkirkju tók formlega til starfa vorið 2010.
Skipuð var stjórn félagsins en í henni sitja: Stefán Árni Stefánsson, Ása Kristín Margeirsdóttir, Gunnar H. Gunnarsson og Ólöf Sveinsdóttir:
Hægt er að senda póst á félagið á safndarfelag@keflavikurkirkja.is
Markmið félagsins er að styðja við starfsemi Keflavíkurkirkju með fjáröflun og sjálfboðaliðavinnu. Allir þeir sem virkir eru í starfsemi Keflavíkurkirkju geta tekið verið meðlimir í Safnaðarfélaginu.
Stjórnarmeðlimir veita frekari upplýsingar auk sóknarprests (skuli@keflavikurkirkja.is)
Sjálfboðaliðar í Keflavíkurkirkju
Undanfarin ár hefur Keflavíkursöfnuður unnið markvisst að því að efla sjálfboðaliða til þjónustu við söfnuðinn. Starf presta og starfsfólks kirkjunnar felst að miklu leyti í því að styðja og hvetja fólk til virkrar þátttöku. Hér er farið yfir helstu áfangana í þeirri vinnu:
Haustið 2006:
Stefnumótunarvinna safnaðarins hefst með ferð í Skálholt undir stjórn Gylfa Dalmann Aðalsteinssonar.
Í stefnumótunarvinnunni voru stofnaðir hópar til þess að þróa þá þrjá meginþætti sem mest áhersla skyldi lögð á:
. Æskulýðsmál
. Helgihald- og menningarstarf
. Kærleiksþjónustu
Í framhaldi voru fundir haldnir víða um samfélagið þar sem hugmyndavinnan var kynnt og fólki boðið til umræðu um þær.
Vorið 2007:
Sóknarnefndin kynnti hugmyndir sínar á opnu húsi sem haldið var í marsbyrjun 2007. Kynningin skiptist í ofangreinda þrjá þætti og var húsfyllir í kirkjunni þegar gestir og gangandi komu til þess að kynna sér stefnumótun Keflavíkursafnaðar.
Ákveðið er að hætta að greiða þóknun fyrir setu á sóknarnefndarfundum. Með því gefur sóknarnefndin fordæmi fyrir það sem koma skal í þessum efnum.
Haustið 2007:
Stefnan var samþykkt á fyrsta sóknarnefndarfundi haustsins. Áfram unnu hóparnir að því að útfæra stefnumótun safnaðarins hver á sínu sviði. Þetta varð talsverð lyftistöng fyrir safnaðarstarfið.
Þemaguðsþjónustur voru haldnar undir forystu leikmanna þar sem saman fór tónlist, myndlist og virk þátttaka messugesta. Guðsþjónusturnar voru þrjár talsins: Trú, von og kærleikur.
Samið var við hópa sem hafa aðgang að kirkjunni um að bera sjálfir ábyrgð á húsnæðinu þau kvöld er þeir leigja kirkjuna í stað þess að launaðir starfsmenn væru þar viðstaddir fram eftir kvöldi.
Vorið 2008:
Á aðalfundi var farið yfir það hversu langt söfnuðurinn var kominn í framkvæmd þeirra verkefna sem ráðast átti í samkvæmt stefnumótuninni. Alls voru ca. 70% hugmyndanna komnar í framkvæmd eða tilbúnar.
Sjálfboðaliðar koma að undirbúningi og framkvæmd helgihalds yfir sumartímann, sem fer fram utandyra að stórum hluta. Má þar nefna leiðsögn, sögulegan fróðleik og skipulag.
Haustið 2008:
Veturinn 2008 til 2009 er helgaður leiðtogasýn í þeim tilgangi að hvetja leikmenn til frumkvæðis og forystu við söfnuðinn. Leshópar fara af stað við kirkjuna þar sem fjallað er um slík málefni.
Hóparnir halda að nýju í Skálholt, ásamt sóknarnefnd, prestum og starfsfólki. Þar var fjallað um forystu og leiðtogasýn í kirkjulegu samfélagi og unnið frekar að þeim sviðum sem hóparnir stýra.
Meðal afraksturs úr þeirri vinnu má nefna Velferðarsjóð á Suðurnesjum . Mikið sjálfboðaliðastarf er unnið við söfnun fjár í sjóðinn.
Á vegum Farskóla þjóðkirkjunnar voru leiðtogaefni úr hópi ungmenna efld til þjónustu í kirkjunni.
Vorið 2009:
Haldið var málþing í kirkjunni undir yfirskriftinni: Leiðarljós og forysta, þar sem fjallað var um þjónandi forystu. Sjálfboðaliðar vinna að undirbúningnum og bera fram veitingar. Kjalarnessprófastsdæmi studdi verkefnið. Sjálfboðaliðar undirbúa einnig guðsþjónustu sem fram fór á undan málþinginu og taka þátt í umræðum við undirbúning predikunar
Sjálfboðaliðar standa fyrir kirkjumarkaði til styrktar Velferðarsjóðnum.
Samstarf við listmálara í sókninni. Dr. Gunnar Kristjánsson flytur erindi um trú og myndlist. Undirbúningur fyrir myndlistarsýningu á Ljósanótt.
Hljómsveitin Talenturnar var stofnuð en hana skipa meðlimir í Kór Keflavíkurkirkju undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Enginn þeirra tekur greiðslu fyrir framlag sitt við helgihaldið.
Kórfélagar taka í auknum mæli að sér einsöng við guðsþjónustur og taka ekki þóknun fyrir.
Haustið 2009:
Enn var haldið í Skálholt. Hugmyndavinna fór fram um tekjuöflun, sparnað og frekari vöxt í sjálfboðastarfi. Vetrarstarfið bar merki þeirrar vinnu.
Keflavíkursöfnuður var meðal helstu þátttakenda í Ljósanótt og þáði fyrir það umsamda þóknun sem rann í safnaðarstarfið. Haldin var málverkasýning sem undirbúin hafði verið vorið áður, fluttur var frumsaminn söngleikur með þátttöku fjölda fermingarbarna og hljómsveitarinnar Talenturnar. Hóparnir koma með virkum hætti að undirbúningi og framkvæmd allra þessara þátta.
Haldinn var stofnfundur Safnaðarfélags Keflavíkursóknar og kjörin stjórn. Félagið er opið öllum þeim sem starfa í þágu safnaðarins. Búseta í sókninni er ekki skilyrði.
Söngleikurinn Kraftaverk á Bethlehemstræti fluttur. Sjálfboðaliðar taka virkan þátt í undirbúningi, s.s. aðst.leikstjórn, búningagerð ofl.
Kór Keflavíkurkirkju flytur Jólaóratoríu Saint Saèns ásamt strengjasveit. Allir sem koma að verkinu gefa vinnu sína. Ágóðinn, kr. 500.000,- rennur í Velferðarsjóðinn.
Vorið 2010:
Tiltektardagur í Keflavíkurkirkju. Sjálfboðaliðar verja heilum laugardegi í kirkjunni þar sem allt er þrifið hátt og lágt. Gengið er frá ýmsum smáviðgerðum, s.s. við ljósabúnað, tréverk ofl. þar sem sérþekking hvers og eins fékk notið sín. Alls komu yfir 50 manns að þessu skemmtilega verkefni og að því loknu voru veitingar framreiddar, sem eldaðar voru á staðnum. Tilefnið var 95 ára afmælishátíð kirkjunnar.
95 ára afmælishátíð Keflavíkurkirkju er haldin með víðtækri þátttöku sjálfboðaliða. Þar er einkum horft til þekkingar þeirra og færni, t.d. hélt matreiðslumeistari námskeið í Biblíumat, í samvinnu við fiskútflytjendur var efnt til fiskimarkaðar, Talenturnar léku, myndlistamenn leiðbeindu börnum við listsköpun, svo eitthvað sé nefnt. Dagskráin var m.a. styrkt af prófastsdæminu.
Námskeið var haldið fyrir messuþjóna og sóttu yfir 20 manns námskeiðið.
Frá og með námskeiðinu er helgihaldið skipulagt með þátttöku messuþjóna sem taka virkan þátt í undirbúningi og framkvæmd hverrar guðsþjónustu.
16 ungmenni á aldrinum 15-18 ára útskrifuð úr Farskóla þjóðkirkjunnar. Nú starfar hópurinn að æskulýðsmálum í sóknum á Suðurnesjum.
Kirkjumarkaður var haldinn að nýju með svipuðu sniði og vorið áður.
Keflavíkurkirkja kemur að undirbúningi málþings um þjónandi forystu sem haldið er á HSS. Kjalarnessprófastsdæmi styrkir þingið. Sjálfboðaliðar úr kirkjustarfinu eru áberandi meðal þátttakenda.
Sr. Erla Guðmundsdóttir prestur við Keflavíkurkirkju heldur í ferð til Hannover á vegum prófastsdæmisins.
Haustið 2010:
Í árlegri haustferð í Skálholt er stefnumótunarvinna nú unnin undir stjórn Kristins Þórs Jakobssonar, meistaranema í mannauðsstjórnun við HÍ, en lokaverkefnið hans fjallar um sjálfboðavinnu við Keflavíkurkirkju. Sigrún Sævarsdóttir Griffith flytur erindi um skapandi forystu og kórinn flytur frumsamið verk sem samið var undir stjórn Sigrúnar. Kjalarnessprófastsdæmi styrkir verkefnið.
Sjálfboðaliðar bera nú fram veitingar í hádeginu að lokinni hverri guðsþjónustu. Tilgangur þessa er þríþættur:
. Að efla leikmannasamfélagið í kirkjunni
. Að safna fé fyrir söfnuðinn – en þeir sem eiga þess kost, greiða fyrir veitingarnar.
. Að bjóða fjölskyldum heitan mat um helgar, þegar börnin borða ekki í skólanum.
Afraksturinn var nýttur til kaupa á geisladisknum Daginn í dag sem gefinn var öllum fjölskyldum sem taka þátt í barnastarfinu í Keflavíkurkirkju, alls eru það 200 eintök.
Boðið var upp á námskeiðið Lifandi steinar fyrir sjálfboðaliða.
Boðið var upp á stuðningsnámskeiðið Skref fyrir skref, einkum fyrir þá sem hafa þegið aðstoð frá Hjálparstarfinu. Hluti þátttakenda bauð fram krafta sína við undirbúning matarúthlutunar í desember.