Keflavíkurkirkja vígð 14. febrúar 1915,
90 ára vígsluafmæli 14. febrúar 2005
- Vígð af sr. Kristni Daníelssyni, sóknarpresti og prófasti.
Akitekt: Rögnvaldur Ólafsson (1874-1917)
Yfirsmiður: Guðni Guðmundsson, múrari, í Reykjavík.
Kirkjan er friðuð (B-friðun)
Altaristaflan er eftir listamanninn Ásgrím Jónsson og var hún máluð árið 1916, sýnir hún fjallræðuna.
Byggður var kór við kirkjuna árið 1966 og steindu gluggarnir, sem sýna liti kirkjuársins, eru eftir listamanninn Benedikt Gunnarsson. Þeim var komið fyrir 1977.
- Safnaðarheimilið, Kirkjulundur var blessað 1. júní árið 2000 og ný kapella, Kapella vonarinnar var vígð af sr. Karli Sigurbjörnssyni, biskupi Íslands. Akitektar safnaðarheimilisins eru Elín Kjartansdóttir, Haraldur Örn Jónsson og Helga Benediktsdóttir. (Verkstæði 3) Byggingin fékk menningarverðlaun Dagblaðsins (DV) árið 2001.
Saga kirkju er stutt í Keflavík, kirkja var byggð rétt fyrir aldamótin 1900, timburkirkja sem fauk áður en smíði hennar var fulllokið skömmu eftir aldamótin. Sá atburður setti söfnuðinn í mikinn vanda þar sem talsverð skuld var á byggingunni og erfitt reyndist að hefja byggingu nýrrar kirkju með skuldina á bakinu. Ólafur Á. Olavsen annar eigandi veslunar H.P. Duus, sýndi þann rausnarskap að bjóðast til að greiða skuld kirkjunnar að hluta og hann ásamt systrum hans lögðu einnig umtalsvert fé í byggingarsjóð nýrrar kirkju.
Keflavíkurkirkja Kirkjuvegi 25, 230 Keflavík, s. 420-4300
The Evangelical Lutheran Church, Kirkjuvegur 25, 230 Keflavík, Iceland.
Safnaðarheimilið Kirkjulundur Kirkjuvegi 25, 230 Keflavík, s. 420-4300,
Kirkjulundur, the Community House Kirkjuvegur 25, 230 Keflavik, Iceland.Eldhús Kirkjulundar s.420-4309. Fax/símbréf: 420-4305
Vefsíða/netföng: keflavikurkirkja.is