Velferðarsjóður á Suðurnesjum

Markmið sjóðsins eru þau að veita neyðaraðstoð umfram það sem Hjálparstarf kirkjunnar (HK) veitir í innanlandsaðstoð sinni. Fjármagnið fer til úthlutunar á Suðurnesjum. Keflavíkurkirkja heldur utan um reikninginn (hann er á kt. kirkjunnar) en sendir reglulega fé af honum inn á reikning HK sem svo miðlar því aftur hingað á svæðið í gegnum aðstoð. Uppgjör sjóðsins er því hluti af uppgjöri fjármála Keflavíkurkirkju.

Með sjóðnum er fjármagni sem ella deilist á marga aðila safnað saman á einn stað. Fyrir vikið gefst betri yfirsýn yfir þörfina og möguleikar til fjáröflunar eru meiri en ella væri þegar kraftarnir dreifast.

Á fundi í október s.l. var stjórn sjóðsins mynduð, en hana skipa fulltrúar Keflavíkurkirkju, Verkalýðsfélaganna og Rauða krossins. Vilborg Oddsdóttir hjá HK er tengiliður við sjóðinn og hefur unnið mikið verk í hans þágu f.h. HK.

Úthlutunarreglur sjóðsins taka mið af reglum HK. Mataraðstoð er veitt þeim sem hafa þegar tekið út sína aðstoð frá HK , lyfjakostnaður, leikskólagjöld, skólamatur, jafnvel ferðir og flutningar einnig. Hvert tilvik er skoðað fyrir sig og rætt af fulltrúum Keflavíkurkirkju og HK. Félagasamtök og félagsmálayfirvöld hafa í auknum mæli vísað í sjóðinn. Alls hefur sjóðurinn veitt á sjöttu milljón á þessu ári en í hann hafa safnast tæpar 12 milljónir (nóvember 2009).

Hér má lesa ítrarlega umfjöllun um Velferðarsjóðinn.

Allir geta lagt sjóðnum lið, bæði með beinum fjárframlögum og ekki síður ýmsu framtaki og söfnun.

Leggja má inn framlög í sjóðinn: 1109-05-1151, kt. 680169-5789

Reglur fyrir Velferðarsjóð á Suðurnesjum
 
1.       Meginhlutverk Velferðarsjóðs Suðurnesja er að veita íbúum á Suðurnesjum brýnasta stuðning í þeim þrengingum sem nú ganga yfir samfélagið.
2.       Hjálparstarf kirkjunnar hefur umsjón með sjóðnum og veitir úr honum samkvæmt því vinnulagi sem þar tíðkast.
3.       Sjóðurinn hefur reikning í Sparisjóði Keflavíkur: 1109-05-1151, kt. 680169-5789
4.       Umsóknir í sjóðinn fara í gegnum þá aðila á Suðurnesjum sem að honum koma, einkum félagsþjónustu sveitarfélaganna, kirkjurnar og frjáls félagasamtök.
5.       Sjóðurinn veitir fyrst og fremst stuðning í formi mataraðstoðar. Veittar eru ávísanir sem gilda til úttektar í matvöruverslunum og í ákveðnum tilvikum greidd matarkort fyrir börn í mötuneytum grunnskólanna.
6.       Einnig veitir sjóðurinn úttektarmiða í aðrar verslanir, s.s. til kaupa á fatnaði, lyfjum, skólavörum og leikföngum.
7.       Bein fjárhagsaðstoð eða annar fjárhagslegur stuðningur heyrir til undantekninga og verður að færa skýr rök fyrir því í umsókn.

Framundan er dagskrá til styrktar Velferðarsjóðnum:

Aðventa 2010 Jólafasta í Keflavíkurkirkju

Stofnunum, fyrirtækjum og félögum stendur til boða að hafa eigin
samveru í kirkjunni á aðventunni. Dagskráin hefst inni í kirkjunni en
þaðan er svo haldið í safnaðarheimilið þar sem boðið er upp á léttar
veitingar og fræðslu um aðventuna og jólin. Gestir eru hvattir til þess
að leggja fram styrk í Velferðarsjóðinn. Prestar og starfsfólk
Keflavíkurkirkju veitir nánari upplýsingar.

 

Haustið 2010 stóð sjóðurinn fyrir námskeiði í samvinnu við Evrópuátak gegn fátækt og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum:

· 14. október: Góðar venjur til árangurs og aukinna afkasta. Hvernig
getum við tamið okkur árangursríkar venjur sem gera okkur kleift að
sigrast á mótlæti og yfirstíga hindranir? María Ellingsen frá
Háskólanum í Reykjavík hefur umsjón með dagskránni.
· 21. október: Heilsa og heilbrigði. Starfsfólk HSS heldur námskeið um
mataræði, hreyfingu, fovarnir og holla lífshætti.
· 28. október: Fjármál og skipulag. Fulltrúi frá SPKEF ræðir kosti við
sparnað og bætta meðferð fjármála. Lára Ómarsdóttir flytur sitt
vinsæla erindi um það hvernig hún hefur getað staðið upprétt í
miklum fjárhagsraunum og öðru mótlæti.
· 4. nóvember: Kynning á hópum og félögum. Kaffihúsastemmning
verður í Kirkjulundi, þar sem fulltrúar bankaútibúa, félagsamtaka og
hópa kynna starfsemi sína og ræða við áhugasama.
Umsjón hafa Hjördís Kristinsdóttir og sr. Skúli S. Ólafsson.

Vorið 2010 stóð sjóðurinn fyrir tveimur atburðum:

Mánudagur 15. febrúar kl. 16:00 Biblíumatur
 
Í Biblíunni er maturinn víða til umfjöllunar og á þessum slóðum fyrir botni Miðjarðarhafs hefur þróast spennandi matreiðsluhefð sem allir þekkja. Við ætlum að gera þessum réttum skil og heldur Axel Jónsson námskeið í eldhúsinu í Kirkjulundi þar sem hann kennir m.a. matreiðslu á Fiskrétti Símonar Péturs, sem er ljúffengt sjávarfang eldað í kúmmínsósu með kússkúss! Tekið er við skráningum á námskeiðið á skuli@keflavikurkirkja.is fram til kl. 12:00 á mánudeginum 15. febrúar.

Fimmtudagur 18/2 Kl. 16:00 Fiskimarkaður Velferðarsjóðsins í Nettó
 
Velferðarsjóður á Suðurnesjum stendur fyrir fiskmarkaði í Nettó. Þar verða harmónikkuleikarar sem spila sjómannatónlist og fiskinum verður pakkað inn í dagblöð að gömlum sið. Axel Jónsson stýrir svo hópnum sem tók þátt í námskeiðinu og framreiðir Biblíumat gegn vægu verði. Allur ágóðinn rennur til Velferðarsjóðsins á Suðurnesjum. Fólk er hvatt til þess að leggja leið sína í Nettó á þessum tíma og leggja sitt af mörkum til uppbyggingar hér á svæðinu. Fiskútflytjendur á svæðinu gefa fiskinn og allir þátttakendur gefa vinnu sína.





Haustið 2009 stóð sjóðurinn fyrir tveimur viðburðum:

Lára Ómarsdóttir: Hagsýni og hamingja
Velferðarsjóður á Suðurnesjum bauð til fyrirlestrar í Kirkjulundi 20. október kl. 17:00

Hvernig er hægt að lifa af litlu án þess að tapa gleðinni? Hagsýni og hamingja er yfirskrift erindis sem Lára Ómarsdóttir mun flytja í Keflavíkurkirkju. Lára þurfti fyrir nokkrum árum að takast á við efnahagslegt hrun heimilisins, ásamt eiginmanni sínum og fimm börnum og er erindið byggt á reynslu hennar. Lára mun fjalla um hvernig hægt er að endurskoða fjárhaginn og spara þúsundir króna í hverjum mánuði en mun fremur hvernig hægt er að endurskoða hug sinn og líta framtíðina bjartari augum.

Sunnudaginn 8. nóvember kl. 12:00 var málþing í Kirkjulundi í tilefni ársafmælis sjóðsins. Yfirskriftin er: Lífsgildi, velferð og hamingja.