Stofnunum, fyrirtækjum og félögum stendur til boða að hafa eigin
samveru í kirkjunni á aðventunni. Dagskráin hefst inni í kirkjunni en
þaðan er svo haldið í safnaðarheimilið þar sem boðið er upp á léttar
veitingar og fræðslu um aðventuna og jólin. Gestir eru hvattir til þess
að leggja fram styrk í Velferðarsjóðinn. Prestar og starfsfólk
Keflavíkurkirkju veita nánari upplýsingar.