Áfram ábyrg er samstarfsverkefni Keflavikurkirkju og Reykjanesbæjar með stuðningi Kjalarnessprófastdæmis. Markmiðið er að styðja foreldra og börn í kjölfar skilnaðar.

Eftirfarandi vinna hefur farið fram á vegum Áfram ábyrg:

1. Áfram ábyrg: Áhrif skilnaðar á börn og leiðir til úrbóta er yfirskrift málþings sem haldið var í Keflavíkurkirkju þann 23. febrúar 2007. Þingið var öllum opið og nýttist sérstaklega þeim er vinna að málefnum barna og fjölskyldna og tengist auk þess mörgum hópum og sviðum í samfélaginu.

Málþingið var samvinnuverkefni Keflavíkurkirkju, Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar og Kjalarnessprófastsdæmis. Tilgangur þess var að varpa ljósi á og skapa umræður um vanda þann sem steðjar að börnum í skilnaðarmálum og leita leiða til þess að bregðast við honum. Nýjustu rannsóknir á þessu sviði voru kynntar en þarna kom saman fagfólk sem vinnur með fjölskyldur og börn í þessum aðstæðum.

Aðalfyrirlesarar voru þær Erika Beckmann sálfræðingur og forstöðumaður fjölskylduþjónustu lúthersku kirkjunnar í Marburg í Þýskalandi og dr. Sigrún Júlíusdóttir prófessor í félagsráðgjöf. Aðrir fyrirlesarar voru: Thomas Mainz, sálfræðingur og samstarfsmaður Eriku Beckmann; Álfgeir Logi Kristjánsson, aðjúkt við KHÍ og Lýðheilsudeild HR; Benedikt Jóhannsson, sálfræðingur og starfsmaður Fjölskylduþjónustu kirkjunnar; Ingibjörg Bjarnadóttir hdl og umsjónarmaður Sáttamiðlunar og Valgerður Halldórsdóttir, kennari og félagsráðgjafi MA og formaður Félags stjúpfjölskyldna. Pallborðsumræður voru í lok ráðstefnunnar.

Þá flutti Edda Björgvinsdóttir, leikkona, þætti úr leikritinu, Alveg brilljant skilnaður.

Laugardaginn 24. febrúar frá kl. 10-12:30 voru myndaðir vinnuhópar undir stjórn Eriku Beckmann og Thomas Mainz undir yfirskriftinni Úrræði í málefnum skilnaðarbarna.

Kjalarnessprófastdæmi stóð svo fyrir útgáfu á erindum málþingsins.

2. Haustið 2007 stóðu sömu aðilar fyrir námskeiðum fyrir fráskilda foreldra þar sem sjónarmiðin sem fram komu á málþinginu voru kynnt. Ágæt þátttaka var og kom fram í umræðum að þörfin fyrir upplýsingar á þessu sviði er afar brýn. Rannveig Guðmundsdóttir, Hera Einarsdóttir og sr. Skúli S. Ólafsson héldu námskeiðið.

3. Vorið 2009 var settur á laggirnar stuðningshópur fyrir börn fráskilinna foreldra. Undirbúningur hófst haustið 2008. Steinunn Anna Sigurjónsdóttir sem er að ljúka kandídatsnámi í sálfræði við HÍ hafði umsjón með námskeiðinu ásamt Sveini Magnússyni kennaranema. Sr. Erla Guðmundsdóttir var tengliður kirkjunnar í þessu verkefni.

4. Í febrúar 2010 var haldið málþing í Keflavíkurkirkju undir yfirskriftinni Áfram ábyrg. Dagskráin var sem hér segir:

Gunnar Kristjánsson prófastur, setti þingið og rakti téða forsögu.
Geir Gunnlaugsson, landlæknir fjallaði í erindi sínu, sem hann nefndi Kreppa, börn og fjölskyldur, almennt um félagsleg áhrif á aðstæður og uppeldi barna. Erindi hans var góður upphafsreitur umræðunnar því þótt þar væri ekki einblínt á skilnaðarbörn, kom skýrt fram hveru mikilvægt það er að búa börnum gott umhverfi til vaxtar og þroska.
Benedikt Jóhannsson, sálfræðingur, nefndi sitt erindi: Börn og skilnaður: Hvað vitum við? Hvert stefnum við? Benedikt hefur fjallað talsvert um þennan málaflokk og m.a. gefið út handhæg rit í þessum efnum. Rakti hann rannsóknir í þessum málafloki og ræddi kosti og galla við sameiginlegt forræði foreldra. Lagði hann áherslu á að börnin fái að taka þátt í ákvörðunum, með hliðsjón af aldri þeirra og þroska.
Sólveig Sigurðardóttir, meistaranemi í félagsráðgjöf, flutti erindið: Aðstæður fráskilinna foreldra og búseta barna. Greindi hún frá rannsókn á högum einstæðra foreldra á Ásbrú sem byggðistá því að tekin voru viðtöl við 10 foreldra sem höfðu sameiginlegt forræði. Tilgangur rannsóknarinnar var að afla vitneskju um lífsskilyrði þessa hóps og greina hvernig einstæðir foreldrar eru staddir samanborið við einstaklinga úr öðrum fjölskyldugerðum. Niðurstöður hennar voru á þá leið að foreldrar voru almennt sáttir við þetta fyrirkomulag og reyna í sameiningu að vinna að því að bæta hag barna sinna.
Steinunn Anna Sigurjónsdóttir, cand. psych nemi, ræddi í erindi sínu: Áfram ábyrg. Stuðningur við börn í kjölfar sambúðarslita eða skilnaðar, um reynsluna sem hlotist hefur af námskeiðinu sem haldið var s.l. haust á vegum þeirra sem standa að Áfram ábyrg, verkefninu. Steinunn Anna gerði grein fyrir því sem vel hafði tekist til með námskeiðið en einnig hinu sem miður hafði gengið. Börnin voru of fá, mætingin var stopul og þau voru of ung þegar skilnaður foreldranna gekk í garð til þess að vinna mætti með reynslu þeirra af sjálfum skilnaðinum. Hið jákvæða var að þarna hefur safnast mikil reynsla, samstarf Steinunnar Önnu við Svein Magnússon var gott og möguleikarnir eru miklir á því að þróa þetta frekar.
Þórólfur Halldórsson, sýslumaður í Keflavík flutti minningu prófessors Ármanns Snævarr, sem andaðist skömmu fyrir þingið. Ármann vann þrekvirki með útgáfu bókar um sifjarétt sem mikið er notuð í þessum málaflokki.
Loks fjallaði Ásgeir Eiríksson, fulltrúi hjá sýslumanni, um nýju barnalögin og fyrirhugaðar breytingar á forsjá, búsetu og umgengni. Gerði hann grein fyrir þeim breytingum sem vænta má af lögunum en sjálfur er hann í undirbúningshópi við gerð þeirra.

Alls komu um 50 gestir á þingið og var almennt gerður góður rómur að erindum og fyrirkomulagi. Leitast var við að hafa dagskrána þétta og markvissa, sem e.t.v. kom niður á umræðunni. Fólk hafði þó tækifæri til þess að bregðast við erindum framsögumanna.

5. Námskeið fyrir fráskilda foreldra í Keflavíkurkirkju fer fram 5. maí 2011. Dagskráin verður auglýst er nær dregur.